UN Women á Íslandi, Samtök Atvinnulífsins, Háskóli Íslands og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stóðu að Hvatningaverðlaunum jafnréttismála árin 2014-2020.
Markmið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem hafa stuðlað að jafnrétti á markvissan hátt innan sinna fyrirtækja og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Aukið jafnrétti á atvinnumarkaði er ekki einungis lagalega og siðferðislega rétt heldur er það fyrirtækjum til heilla bæði út frá samfélagsábyrgð og viðskiptalegum forsendum.
Á þessum árum voru mörg framfaraskref verið tekin af atvinnulífinu í jafnréttismálum og fyrir vikið dró UN Women á Íslandi sig út úr samstarfinu sem einn af og afhenti keflið að fullu Samtökum atvinnulífsins og Háskóla Íslands að afhendingu lokinni árið 2020.
Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið hvatningaverðlaun jafnréttismála
2014: Rio Tinto
2015: Orkuveitan
2016: Íslandsbanki
2017: Vodafone
2018: Sagafilm
2019: Landsvirkjun