UN Women á Íslandi og Iceland Hotel Collection by Berjaya hafa tekið höndum saman og gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Markmiðið með samstarfinu er að stuðla að menningu jafnréttis innan hótelkeðjunnar Iceland Hotel Collection by Berjaya og að afla fjár til verkefna UN Women á heimsvísu.

Norazman Chung framkvæmdastjóri Iceland Hotel Collection by Berjaya og Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi skrifuðu undir samkomulag um samstarf vorið 2024.

Megintilgangur samstarfsins er að hafa áhrif á framþróun jafnréttismála á heimsvísu sem og innanlands. Ísland er í fararbroddi í jafnréttismálum í heiminum og er mikil fyrirmynd annarra þjóða hvað þessi mál varðar.

 

Ferðaþjónustan á Íslandi hefur öðlast aukið mikilvægi síðustu ár og hefur fjöldi ferðafólks sem sækir Ísland heim aldrei verið meiri. Því fylgir ábyrgð að vera fremst á meðal þjóða í kynjajafnrétti og með sameiginlegu átaki ætla UN Women á Íslandi og Iceland Hotel Collection by Berjaya að ná eyrum ferðafólks um mikilvægi jafnréttismála.

Hótelkeðjan býður viðskiptavinum sínum að styðja við starf UN Women á Íslandi í gegnum bókunarvél á netinu sem og í gestamóttökum hótelanna. Einnig verður  varningur samtakanna seldur í verslunum hótelanna.