Völd og áhrif kvenna á vettvangi stjórnmála og á vinnumarkaði eru takmörkuð um allan heim.
  • Aðeins 21% ráðherra í heiminum er kona
  • Starfandi þingkonur í heiminum eru rúm 20% allra þingmanna
  • Tuttugu og sex konur gegna embætti forseta eða forsætisráðherra í heiminum í dag árið 2021

Of fáar konur eru leiðtogar og fylla forystusæti kjörinna fulltrúa í bæði ríkis- og sveitastjórnum sem og innan háskólasamfélagsins. Kjörsókn kvenna er lakari en karla víða um heim. Konur standa frammi fyrir ýmsum hindrunum á leið sinni til áhrifa. Kerfislæg mismunun í bland við óréttlát lög erfiða konum til athafna og valda. Staðan er því miður þessi þrátt fyrir að konur og karlar séu jafn hæf til að leiða og vera í forystuhlutverki.

Þegar konur eru virkir þátttakendur í stjórnmálum eru teknar ákvarðanir sem hagnast bæði konum og karlmönnum. Leiðtogaþjálfun og efling þátttöku kvenna í stjórnmálum eru lykilatriði við að lagfæra þennan halla.

UN Women styður konur til forystu og áhrifa um allan heim með því að:
  • þrýsta á stjórnvöld að breyta lögum sem mismuna á grundvelli kyns
  • tryggja konum greiðan aðgang að kjörklefum sem og þingsætum
  • veita konum frumkvöðla- og leiðtogaþjálfun þar sem staða kvenna er hve bágust
  • Standa vörð um réttindi kvenna, kosningarrétt og réttinn til að lifa án ofbeldis

DÆMI UM VERKEFNI