UN Women á Íslandi á í farsælu samstarfi við utanríkisráðuneytið.
UN Women er ein af áherslustofnunum Íslands í þróunarsamvinnu. Ísland hefur stutt stofnunina frá upphafi og er á meðal helstu stuðningsaðila. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, undirritaði í lok árs 2020 nýjan rammasamning um stuðning Íslands við UN Women sem gildir til loka árs 2023. Í samningnum er lögð áhersla á að auka kjarnaframlög til stofnunarinnar sem veitir hennir sveigjanleika til að bregðast við þar sem þörfin er mest hverju sinni.
Eitt helsta markmið samningsins er að stuðla að vitundarvakningu og sinna fræðslu- og upplýsingastarfi um störf UN Women, kynjajafnrétti og málefni kvenna í þróunarlöndum. Auk þess sem landsnefndin veitir almenna ráðgjöf og umsögn vegna málefna á fjölþjóðlegum vettvangi og sinnir fræðslu um jafnréttismál fyrir sérfræðinga sem fara til starfa á vettvangi á vegum utanríkisráðuneytisins. Þá mun landsnefndin leggja aukna áherslu á að fræða almenning um þátttöku UN Women í mannúðarstarfi. Stofnunin hóf verkefnisstuðning á þeim vettvangi árið 2015 með miklum árangri, það felst í stuðningi við konur sem búa við neyð, áherslu á öryggi t.d. í flóttamannabúðum og fræðslu til samtaka sem sinna mannúðarstarfi svo fátt eitt sé nefnt.
Ráðuneytið styður einnig markmið HeforShe-herferðar UN Women í samræmi við skuldbindingar Íslands í IMPACT-átaki UN Women. Markmið verkefnisins er að einn af hverjum fimm karlmönnum á Íslandi gangi til liðs við átakið og styður ráðuneytið við herferð landsnefndar UN Women til að ná megi því markmiði.