Ráðstefnan Kynslóð jafnréttis 30.júní-2.júlí er öllum opin

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Ráðstefnan Kynslóð jafnréttis 30.júní-2.júlí er öllum opin

Seinni hluti alþjóðlegu jafnréttisráðstefnunnar Kynslóð jafnréttis (Generation Equality Forum) fer fram í París 30.júní-2.júlí. Fyrri hluti ráðstefnunnar fór fram í Mexíkó í mars. Á ráðstefnunni munu þjóðhöfðingjar, ráðamenn ríkisstjórna, alþjóðlegar stofnanir sem og almenningur og aðilar úr atvinnulífinu og ungliðahreyfingum sameinast um aðgerðaráætlun til fimm ára um hvernig megi hraða framförum í þágu jafnréttis.

Ráðstefnan verður rafræn og er öllum opin. Nauðsynlegt er að skrá sig til að hljóta aðgang að viðburðum ráðstefnunnar, en boðið verður upp á tæplega 90 viðburði með erindum 500 pallborðsþátttakenda frá öllum heimshornum.

Átakinu Kynslóð jafnréttis (Generation Equality) var ýtt úr vör af UN Women í fyrra og er samstarfsverkefni UN Women og ríkisstjórna Mexíkó og Frakklands. Átakið markar 25 ára afmæli Pekingsáttmálans sem leit dagsins ljós á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í Peking árið 1995. Sáttmálinn var undirritaður af ríkisstjórnum 189 ríkja heims, þar með talið ríkisstjórn Íslands, sem skuldbundu sig þar með að innleiða Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um afnám kynbundins mismunar.

Síðan Covid-19 faraldurinn skall á heimsbyggðinni í upphafi ársins 2020 hefur orðið mikil afturför í jafnréttismálum og mun öll umræða ráðstefnunnar í París markast af þeirri staðreynd. Áhrif heimsfaraldursins hefur lagst af meiri þunga á konur og stúlkur:

  • Tíðni heimilisofbeldis jókst umtalsvert í faraldrinum
  • Efnahagslegum björgunaraðgerðum stjórnvalda er frekar beint að körlum en konum
  • Vinnuálag kvenna margfaldaðist í faraldrinum þegar skólum var lokað
  • Konur voru líklegri til að missa vinnuna en karlmenn

UN Women brýnir því fyrir aðildarríkjum að setja baráttuna fyrir jafnrétti í forgang nú þegar farið er að losa um hömlur vegna Covid-19.

Hægt er að skrá sig á Kynslóð jafnréttis ráðstefnuna til og með 27. júní næstkomandi.

Related Posts