Vörum við svikapóstum og smáskilaboðum í nafni UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Vörum við svikapóstum og smáskilaboðum í nafni UN Women á Íslandi

UN Women á Íslandi hafa borist tilkynningar um tölvupóst og smáskilaboð þar sem fólk er ýmist beðið um aðstoð við kaup á vörum eða beðið um að leiðrétta kortafærslu.

UN Women á Íslandi

Nafn stjórnarformanns UN Women á Íslandi hefur verið notað sem sendandi tölvupóstanna í nafni samtakanna.

Við vekjum athygli á því að skilaboðin eru ekki frá UN Women á Íslandi og viljum við vara fólk við að svara tölvupóstinum og við því að ýta á hlekki og viðhengi sem geta fylgt svikapóstum sem þessum.

 

Related Posts