Tilskipun nr 18 mismunar konum enn frekar

Heim / Fréttir / Tilskipun nr 18 mismunar konum enn frekar

Tilskipun númer 18, sem talíbanastjórnin í Afganistan hefur gefið út, grefur enn frekar undan réttindum og öryggi kvenna og stúlkna í landinu, segir í yfirlýsingu frá Susan Ferguson, sérstökum fulltrúa UN Women í Afganistan.

Tilskipun númer 18, sem gefin var út þann 14. maí síðastliðinn, takmarkar enn frekar rétt kvenna og stúlkna til að sækja um skilnað frá maka. Tilskipunin hverfur einnig frá því að tilgreina lágmarksaldur þegar kemur að því að ganga í hjónaband. Þess í stað eru settar fram leiðbeiningar um hvernig barn, sem þvingað var í hjónaband, getur sótt um ógildingu hjúskapar eftir að barnið hefur náð kynþroskaaldri. Með því að banna ekki barnahjónabönd, heldur gefa í skyn að ‏þau séu heimil er hætta á að siðurinn færist í aukana.

Tilskipunin gerir konum einnig erfiðara um vik með að sækja um skilnað frá maka. Lögin mismuna konum sem vilja sækja um skilnað með ýmsum hætti. Til dæmis er gerð krafa um að kona sem sækir um skilnað skili inn fjölda vitnisburða máli sínu til stuðnings, nokkuð sem karlmaður ‏þarf ekki að gera. Þá getur eiginmaður ákveðið að samþykkja ekki ósk hennar um skilnað.

UN Women ítrekar að afganskar konur og stúlkur eiga rétt til lífs án ofbeldis og mismununar. Þær eiga rétt á að lifa með reisn og við öryggi, vera frjálsar ferða sinna og fá að taka þátt í opinberu lífi. Tryggja þarf jafnan rétt kvenna og karla fyrir lögum.

Lesa má yfirlýsinguna í heild sinni hér.

Related Posts