Hvernig ræðum við mannhvelið við drengina okkar?

Heim / Fréttir / Hvernig ræðum við mannhvelið við drengina okkar?

Mannhvelið og hin skaðlega orðræða sem þar þrífst hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarin ár. Sjónvarpsþættir á borð við Adolescence og Louis Theroux: Inside the Manosphere vöktu verðskuldaða athygli og umtal.

Líkur eru á að hver drengur sem hefur aðgengi að snjalltækjum og samfélagsmiðlum muni hafa séð efni sem byggist á skilaboðum mannhvelsins: skilaboð um nauðsyn efnahagslegs árangurs, looksmaxxing, drottnun yfir konum og stúlkum og hvernig jafnrétti hefur mismunað karlmönnum. 

Fyrir marga foreldra og forsjáraðila getur reynst flókið að átta sig á því hvenær beri að stíga inn þegar drengir byrja að neyta slíks efnis. Hvað skal segja og hvernig er best að hefja samtalið án þess að það sé dæmandi?

Hér að neðan eru nokkur ráð til foreldra. 

 

Hvað liggur að baki efnissköpun mannhvelsins?

Í stuttu máli er það aðeins eitt: Fjárhagslegur ágóði.

Vinsælustu áhrifavaldarnir innan mannhvelsins hafa aflað sér gríðarlegs fjölda fylgjenda. Með hverjum fylgjanda auka þeir tekjur sínar. 

Samfélagsmiðlaveitur verðlauna efnissköpun sem fangar athygli fólks. Skilaboð og efni sem vekja upp sterkar tilfinningar á borð við reiði, gremju eða misbjóða neytandanum, eru líklegri til að fara í dreifingu og vekja umtal en efni sem gerir það ekki. Einstaklingarnir sem framleiða slíkt efni fá aukið áhorf, fleiri fylgjendur og auknar tekjur í gegnum auglýsingasölu. 

 

Af hverju horfa drengir á skaðlegt efni?


Drengir leiðast oft inn í mannhvelið í leit að svörum við vandamálum sem fylgja unglingsárunum. Þeir gætu verið að upplifa ástarsorg eða höfnun, verið einmana eða einfaldlega verið að leita eftir upplýsingum um hollara líferni. Þegar ungt fólk upplifir sig utangarðs í skóla, heima eða í samfélaginu, leitar það gjarnan að samþykki og félagsskap í rýmum á netinu. Innan mannhvelsins finna drengir einföld, en oft villandi, svör við flóknum tilfinningum og vandamálum.

Í Svellinu hlaðvarpi var meðal annars fjallað um hið stafræna umhverfi sem börn og ungir drengir lifa og hrærast í, tilfinningar, skaðlega áhrifavalda og jákvæðar og neikvæðar hliðar netsins.

Hlustaðu á þáttinn hér.

 

Hvernig ræðum við mannhvelið við drengi?

Hér eru nokkur gagnleg ráð.

1. Hefjum samstalið með forvitni og án fordóma

Í stað þess að stöðva samtalið, spurðu:

  • „Hvað er það sem þér líkar við í fari þessa einstaklings?“
  • „Af hverju vekur þetta efni áhuga þinn?“

Samtal virkar oftast betur en yfirheyrsla. Ef ungt fólk óttast að vera dæmt fyrir skoðanir sínar er það ólíklegra til að deila hugsunum sínum og tilfinningum með fullorðnum.

 

 

2. Hjálpaðu þeim við að horfa gagnrýnið á það sem þau sjá og lesa

Þessi liður æfir gagnrýna hugsun. Horfið á efni saman og spyrjið:

  • „Hver eru skilaboðin hér?“
  • „Heldurðu að þetta sé satt?“
  • „Af hverju heldurðu að þetta efni hafi fengið svona mikið áhorf?“
  • „Hvað telurðu að einstaklingurinn græði á því að tala með þessum hætti?“
  • „Hefurðu tekið eftir #spon eða #ad í færslunni, hvað heldurðu að það þýði?“

 

3. Skapaðu rými fyrir erfiðar samræður

Góð tengsl við fullorðna eru besta forvörnin gegn skaðlegu efni á netinu. Mörgum ungum drengjum er kennt að:

  • Sýna ekki tilfinningar
  • Biðja ekki um aðstoð
  • Vera sterkir, alltaf.

Þú getur unnið á móti þessu með því að:

  • Tala um höfnun, sjálfsöryggi og vináttu
  • Sýna að það er eðlilegt að geta berskjaldað sig fyrir öðrum
  • Sýna að erfiðleikar eru ekki það sama og að mistakast

4. Bjóddu ekki aðeins fram ráð, heldur aðra valkosti

Fyrir marga er mannhvelið samfélag. Þú getur í staðinn boðið upp á:

  • Rými þar sem þeim finnst þau tilheyra
  • Jákvæðar fyrirmyndir
  • Rými sem stuðla að sjálfsöryggi án þess að það sé á kostnað annarra, til dæmis í gegnum íþróttir eða listsköpun

Margt ungt fólk finnur jákvæð og styðjandi samfélög á netinu. Takmarkið er ekki að fjarlægja þau af netinu, heldur aðstoða þau við að skilja muninn á jákvæðu rými og skaðlegu rými.

5. Haltu ró þinni, jafnvel þegar það reynist erfitt

Ef barn opnar sig og mætir reiði, hræðslu eða refsingum er það líklegt til að hætta að leita til þín eftir ráðleggingum.
Þess í stað skaltu halda ró þinni, þakka þeim fyrir að treysta þér og halda samtalinu gangandi. Þú þarft ekki að hafa öll svörin, reyndu bara að halda samtalinu opnu.

 

 

6. Munið, mannhvelið hefur einnig áhrif á stúlkur

Sumar stúlkur hafa fjarlægst stafræn rými, taka ekki lengur þátt í samfélagslegri umræðu og í sumum tilfellum kjósa þær að vera í engum samskiptum við drengi vegna skaðlegra viðhorfa og orðræðu í sinn garð. Aðrar upplifa lágt sjálfsmat og tileinka sér skaðleg viðhorf.

Stúlkur þurfa staðfestingu, örugg rými til að opna sig og vera virtar að verðleikum.

Related Posts