FO-bolurinn 2025 styður við frjálsa fjölmiðlun í Afganistan

Heim / Fréttir / FO-bolurinn 2025 styður við frjálsa fjölmiðlun í Afganistan

Embla Bachmann var ein af fyrirsætu FO-herferðarinnar 2025. Mynd/Atli Þór

FO-bolurinn 2025, hannaður af Helgu Lilju Magnúsdóttur, studdi við verkefni UN Women í Afganistan. Í lok ársins 2025 sendi UN Women á Íslandi tæpar 4,8 milljónir til UN Women í Afganistan. Fjármagnið frá Íslandi hefur m.a. stutt við konur í fjölmiðlun, sem kallast vel á við efni FO-átaksins sem fólst í því að hampa röddum afganskra kvenna. Öryggismiðstöðin var bakhjarl verkefnisins sem gerði UN Women á Íslandi kleift að senda allar tekjur sölunnar til UN Women í Afganistan.

Fyrir valdatöku talíbana árið 2021 störfuðu 2.833 konur við fjölmiðlun í Afganistan, en í dag er áætlað að um 600 konur starfi með einhverjum hætti við fjölmiðlun. Fækkunin hefur því verið gífurleg. Árið 2024 setti talíbanastjórnin lög um útbreiðslu dyggða og forvarnir gegn löstum (e. Law on the Propagation of Virtue and Prevention of Vice) sem gaf stjórninni auknar heimildir til eftirlits með fjölmiðlum á grundvelli siðgæðis. Hömlur á frjálsa fjölmiðlun voru auknar árið 2025, og aftur 2026, þegar lögin voru útvíkkuð og viðtöl við opinbera starfsmenn talíbanastjórnarinnar voru bönnuð í sex héruðum af 23. Þá var fjölmiðlum óheimilt að taka upp efni sem sýndi opinbera starfsmenn talíbanastjórnarinnar. Margir héraðsfjölmiðlar lögðu upp laupana eða færðu starfsemi sína alfarið yfir í útvarp eftir að hafa gerst brotlegir við lögin um útbreiðslu dyggða og forvarna gegn löstum. Þá var starfsleyfi nokkurra fjölmiðla afturkallað því talíbanastjórnin taldi þá „óábyrga“.

Sæta handahófskenndum handtökum

Samkvæmt United Nations Assistance Mission in Afghanistan (UNAMA) sæta mannréttindastofnanir, fjölmiðlafólk og annað starfsfólk fjölmiðla enn handahófskenndum handtökum og gæsluvarðhaldi. Flest upplifa því mikinn ótta við störf sín og stunda sjálfsritskoðun.

Áhrif lagasetninganna hafa enn meiri áhrif á konur í fjölmiðlun en karlkyns samstarfsmenn þeirra. Konur geta til að mynda ekki ferðast frá starfsstöðvum sínum og á vettvang frétta nema í fylgd mahram sem hamlar starfi þeirra mjög. Konur mega heldur ekki birtast í þeim ríkisfjölmiðlum sem enn eru starfandi, þær mega ekki taka viðtöl við karlmenn og fá ekki aðgang að blaðamannafundum. Þátttaka kvenna í fjölmiðlun hefur því minnkað gríðarlega og hefur um leið áhrif á aðgengi kvenna að upplýsingum. Þetta grefur ekki aðeins undan fjölmiðlafrelsi í landinu heldur jaðarsetur enn frekar raddir og sjónarmið kvenna.

Hvað gerir UN Women í Afganistan?

Sem viðbragð við þróuninni mun UN Women áfram standa vörð um raddir kvenna og styðja við þær, meðal annars í gegnum fjölmiðla í Afganistan sem hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi. Fjármagnið sem safnaðist í gegnum FO-herferð UN Women á Íslandi var meðal annars nýtt til að styðja enn frekar við þau verkefni. Þannig er hægt að tryggja áfram að raddir og sjónarmið kvenna komi fram, bæði á innlendum vettvangi en einnig alþjóðlega. Er þetta sérstaklega mikilvægt þegar raddir afganskra kvenna hafa markvisst verið þaggaðar af talíbanastjórninni.

Hvernig starfar UN Women í Afganistan?

UN Women studdi árið 2025 við fimm fjölmiðla sem hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi. Verkefnið tryggði 95 starfsmönnum miðlanna stuðning, þmt 67 konur og 28 karlmenn, sem gerði miðlunum unnt að halda úti starfsemi sinni. Fjölmiðlarnir birtu efni um réttindi kvenna en miðluðu því með hætti sem tók tillit til menningarlegra og staðbundinna þátta.

UN Women í Afganistan studdi við þjálfun ungs fjölmiðlafólks til að tryggja áframhaldandi þekkingu í faginu. Alls hlutu 135 konur og 3 karlmenn fjárstuðning í þessum tilgangi. Þjálfunin varð til þess að 21 ung kona hlaut áframhaldandi atvinnu, meðal annars við þáttagerð í útvarpi. Að auki hlutu 12 blaðakonur stuðning við fréttaskrif og við að efla tengslanet sitt á alþjóðavettvangi.

Áframhaldandi stuðningur UN Women á Íslandi við konur í Afganistan

UN Women í Afganistan hyggst áfram styðja við konur og frjálsa fjölmiðlun í landinu á árinu. Geta fjölmiðlakvenna í að fjalla um loftslagsmál og kynjuð áhrif þeirra verður aukin. UN Women mun veita fjölmiðlakonum sálrænan stuðning og verndarþjónustu, einkum þeirra er búa við ógn. UN Women mun áfram þrýsta á talíbanastjórnina í þeim tilgangi að vekja athygli á þeim áskorunum sem konur í fjölmiðlun standa frammi fyrir og til að tryggja þeim öruggan vettvang til að koma málefnum sínum á framfæri við talíbanastjórnina. Með þessum hætti getur UN Women stutt við fjölmiðlakonur og sjálfstæða fjölmiðla sem aftur gerir konum kleift að taka þátt í samfélaginu á öruggan máta.

UN Women á Íslandi styður áfram við verkefni UN Women í Afganistan með áframhaldandi sölu á FO-bolnum. Með kaupum á bolnum getur þú stutt við frjálsa fjölmiðlun í landinu og fjölmiðlafólk á mjög erfiðum tímum.

Related Posts