Aukinn áhugi á íþróttum kvenna

Heim / Fréttir / Aukinn áhugi á íþróttum kvenna

UN Women og FIFA tóku höndum saman á heimsmeistaramótinu 2024.

Íþróttir eru ekki aðeins heilsubót, heldur efla þær færni ungra iðkenda í samskiptum og samvinnu og efla sjálfsöryggi þeirra og seiglu. Stúlkur sem iðka íþróttir eru líklegri til að halda áfram í framhaldsnám, eignast börn síðar á ævinni og eru líklegri til að ná árangri á vinnumarkaði en þær sem ekki stunda íþróttir.

Könnun sem Parity Now gerði sýndi að meirihluti fólks taldi mikilvægt að stúlkur iðkuðu íþróttir. 61 prósent aðspurðra töldu það „mjög mikilvægt“. Þrátt fyrir þetta eru 14 ára stúlkur tvöfalt líklegri til að hætta íþróttaiðkun en drengir á sama aldri. Ástæðurnar eru margþættar en misrétti er ein helsta ástæðan.

 

Aukinn áhugi á íþróttum kvenna

Áhugi almennings á íþróttum kvenna hefur aukist umtalsvert á undanförnum árum. Árið 2024 sagðist helmingur heimsbyggðarinnar fylgjast með íþróttum kvenna, sem er 45% aukning frá því sem var 2022.

Fjöldi alþjóðlegra íþróttasambanda hefur heitið því að jafna verðlaunafé stórmóta á næstu árum. Þá voru Ólympíuleikarnir í París 2024 sögulegir fyrir þær sakir að þetta var í fyrsta sinn í sögu þeirra þar sem kynjahlutfall keppenda var jafnt.

Knattspyrnusambönd Bandaríkjanna, Ástralíu, Noregs, Nýja-Sjálands og Brasilíu eru á meðal þeirra sem hafa heitið því að jafna launagreiðslur landsliða sinna, svo kvennalandsliðið hljóti jöfn laun á við karlalandsliðið.

 

Enn langt í land 

Þrátt fyrir jákvæðar framfarir til að jafna hlut íþróttakvenna er enn langt í land. Skýrsla á vegum World Athletics sýndi að í aðdraganda Ólympíuleikanna í Tókýó var 85% alls netáreitis beint að íþróttakonum. 63 prósent rekjanlegs netáreitis var beint að einungis tveimur þátttakendum – báðar voru litaðar konur.

Þá eru konur enn aðeins lítill hluti þjálfara og yfirmanna innan íþróttahreyfinga. Samkvæmt FIFA eru konur aðeins um 5% allra skráðra fótboltaþjálfara. Þá sýndi skýrsla Sport Integrity Global Alliance að konur í framkvæmdastöðum innan allra alþjóðlegra íþróttasambanda voru um 32 prósent.

Hægt er að lesa ítarlega umfjöllun UN Women um konur í íþróttum hér.

 

Related Posts