Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks

Heim / Fréttir / Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks

Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks, einnig nefndur IDAHOBIT (e. International Day Against Homophobia, Biphobia, Intersex Discrimination and Transphobia), 17. maí. 

Alþjóðleg yfirskrift dagsins er „At the heart of democracy“. UN Women ítrekar þá afstöðu sína að lýðræðisríki séu sterkust þegar þau eru inngildandi, ábyrg og endurspegla þann fjöbreytileika sem ríkir í samfélaginu – þegar þau standa vörð um jafnan rétt hinsegin fólks, reisn þess og tryggja öryggi þess og fulla þátttöku í samfélaginu. 

Um allan heim hefur hinsegin fólk orðið fyrir aukinni mismunun, fordómum og ofbeldi og tilvist þess gerð refsiverð. Þessi aðför að réttindum hinsegin fólks er hluti af stærra bakslagi gegn kynjajafnrétti og mannréttindum á alþjóðavísu. 

 

Mannréttindi undirstaða lýðræðis

Það að standa vörð um réttindi allra er undirstaða þess að standa vörð um lýðræðið, tryggja ábyrgðarskyldur ábyrgðaraðila og að stofnanir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins sem þær eiga að þjóna. Aktívistar, femínistar og mannréttindafrömuðir berjast dag hvern gegn aðförinni að frelsi og mannréttindum. Oft er fórnarkostnaðurinn mikill. 

Á sama tíma hefur fjárstuðningur við félagasamtök minnkað, nokkuð sem heftir starfsemi þeirra gríðarlega. UN Women vinnur með félagasamtökum um allan heim að því að efla lög og umbætur í þágu mannréttinda og styður við femínískar hreyfingar og samtök hinsegin fólks sem drífa umbótastarfið áfram. 

Á þessum degi hvetjum við stjórnvöld og samstarfsaðila til að sýna inngildingu í verki, tryggja öryggi og þátttöku allra og fjárfesta til framtíðar í femínískum félagasamtökum og réttindasamtökum hinsegin fólks. 

Related Posts
Anna Steinsen