Hættu ‏þessu rugli – ávarp Önnu Steinsen, formanns

Heim / Fréttir / Hættu ‏þessu rugli – ávarp Önnu Steinsen, formanns

Höfundur er Anna Steinsen, formaður stjórnar UN Women á Íslandi. Greinin birtist í ársskýrslu UN Women á Íslandi. 

 

Anna Steinsen

Anna Steinsen, formaður stjórnar UN Women á Íslandi

Hann fór líklega ekki fram hjá mörgum, þátturinn á Netflix sem heitir Louis Theroux: Inside the Manosphere. Mig setti hljóða eftir að hafa horft á þáttinn, vegna mannanna sem þarna voru og skilaboðanna sem þeir sendu, stoltir af sér og sinni karlmennsku. Skilaboðin, meðal annars, um að konur ættu ekki hafa réttinn til að kjósa og að karlar viti hvað konum er fyrir bestu, að besti staðurinn fyrir konur væri í eldhúsinu og fleiri skilaboð sem varla er hægt að tala um. Og nei, þetta er ekki þáttur frá 1963 ! Margir hugsa líklega: „Hvað, þetta eru bara einhverjir gaurar og hafa engin áhrif“. En því miður er það þannig að þeir eru fyrirmyndir fyrir marga unga menn og drengi. Þeir hafa gífurlegan áhrifamátt í gegnum samfélagsmiðla, í milljónavís.

Ég vildi óska þess að fleiri karlmenn myndu standa upp og hafa hugrekki til þess að fordæma þessa gæja og tala frekar um jákvæða karlmennsku. Menn sem hafa raunverulegt sjálfstraust, þurfa ekki að vera með kvenfyrirlitningu og upphefja ofbeldi gegn konum, heldur trúa á jafnrétti og mannréttindi. Að við getum öll búið á þessari jarðkringlu með jöfn tækifæri. Það er náttúrúrlega þannig að þegar að öll kyn taka þátt í samfélaginu, ekki bara eitt kyn á vinnumarkaði, þá eykst þjóðarframleiðslan – útreikningar UN Women áætla að verg landsframleiðsla á heimsvísu myndi aukast um 20% miðað við höfðatölu, ef kynjabilinu yrði eytt. Þær þjóðir sem nýta krafta þegna sinna, blómstra og dafna, eru hamingjusamari og ríkari að öllu leyti, og þá er ég ekki að tala bara um peninga.

 

Leyfum þeim ekki að komast upp með þetta

Við konur og minnihlutahópar höfum barist í áraraðir, fyrir því að hafa rödd, að segja okkar skoðun, að fá sæti við borðið. Við höfum náð frábærum árangri í jafnrétti á Íslandi sérstaklega, og á Norðurlöndum. Maður heldur því að hlutirnir geti ekki farið aftur á bak fyrst við erum komin svona langt. En jú, jú, það kom bakslag og það finnum við út um allan heim. Það hjálpar ekki baráttunni þegar við erum með unga karlmenn sem fyrirmyndir á samfélagsmiðlum að breiða út boðskap mannhvelsins.

Ég biðla til allra karlmanna, sem sitja vel í eigin skinni og eru með raunverulegt sjálfstraust. Næst þegar einhver svona gaur ætlar að koma með einhverja svona glataða ræðu um að konur eigi ekki að kjósa, eða eru óæðri, eða eitthvað svona bull, að stoppa það af strax. Þrasa við þetta lið, taka nokkur komment á kommentakerfunum og leyfa þeim ekki komast upp með þetta. Því í krafti földans, sem sýnir hugrekki og stígur fram, breytum við hlutum og það er alltaf auðveldara að vera hluti af fjöldanum í stað þess að vera einn. Við þurfum fjöldann af karlmönnum sem ýta við öðrum karlmönnum og segja hættuþessurugli!

 

Related Posts