Fleiri en 100 konur og stúlkur eru þvingaðar á flótta á hverri klukkustund í Suður-Súdan. Sumar eru án matar og drykkjar í marga daga. Anna Mutavati, svæðisstjóri UN Women í Austur- og Suður-Afríku, kallar eftir friði og segir ofbeldi, fólksflótta og fæðuóöryggi fara vaxandi. Tæplega 60 prósent – 223.641 – þeirra sem hafa hrakist að heiman í Suður-Súdan frá áramótum eru konur og stúlkur. Það gerir um 104 á hverri klukkustund.
Fjöldamorð og skipulagðar árásir í Suður-Súdan

Súdanskar konur sækja
vatn. Mynd/UN Women
Flest hafa flúið Jonglei-hérað í austurhluta landsins, þar sem um 174.197 konur og stúlkur hafa þurft að flýja [1]. Konur og stúlkur eru á meðal þeirra sem hafa verið drepin í fjöldamorðum og skipulögðum árásum. Árásir á heilbrigðisstofnanir í Jonglei-héraði hafa svipt konur og stúlkur aðgangi að lífsnauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Konur þurfa að fæða börn án nokkurrar læknishjálpar – við lífshættulegar aðstæður, í landi sem er nú þegar með eina hæstu tíðni mæðradauða á alþjóðavísu.
Konur berskjaldaðar fyrir kynferðislegu ofbeldi þegar þær leita eftir vatni og mat
Um 5 milljónir kvenna og stúlkna í Suður-Súdan þurfa á mannúðaraðstoð að halda á þessu ári [2]. Á meðal þeirra eru 2,5 milljónir kvenna og stúlkna sem þurfa á aðstoð að halda vegna kynbundins ofbeldis [3]. Áður höfðu fleiri en tveir þriðju kvenna og stúlkna í landinu greint frá slíku ofbeldi sem nú stigmagnast.
Nú er upphaf ræktunartíðarinnar í Suður-Súdan og birgðir síðasta árs að klárast og lítið um fæðu. UN Women segir konur og stúlkur hafa gripið til þess örþrifaráðs að leggja sér villtar plöntur til munns og margar neyta ekki matar í marga daga. Mutavati segir tilfellum vannæringar fjölga. Konur á flótta eru auk þess berskjaldaðar fyrir kynferðislegu ofbeldi þegar þær leita eftir vatni og mat.
Milljónir á flótta
Stríðið í nágrannaríkinu Súdan hefur hrakið 2,4 milljónir Súdana á flótta yfir landamærin til Suður-Súdan. Að auki fjölgar þeim Suður-Súdönum sem snúa aftur heim eftir að hafa flúið átökin í Suður-Súdan. Þá eru 2,6 milljónir á vergangi innan ríkisins sem eykur enn frekar á neyð fólks.
UN Women er starfandi í Suður-Súdan og vinnur þar náið með kvenreknum félagasamtökum að því að veita neyðaraðstoð, þar með talið tjöld og læknisþjónustu. En einnig sálræna aðstoð, fjárhagsaðstoð og vernd.
Hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild sinni hér.
