
Anna Steinsen, formaður stjórnar, setur fundinn. Mynd/UN Women Íslandi

Aðalfundur UN Women á Íslandi fór fram í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, í gær. Ólafur Elínarson, samskiptastjóri Carbfix, hætti eftir sex ára stjórnarsetu, þar af fjögur sem varaformaður stjórnar. Þá lauk Jón Jónsson tónlistarmaður stjórnarsetu, sem og Erik Figueras Torras, forstjóri Mílu.
Þrír voru kosnir í stjórn UN Women á Íslandi til næstu tveggja ára: Davíð Stefán Guðmundsson CCO hjá uiData, Sigfús Ásgeir Kárason, fjármálastjóri Loftleiðir Icelandic, og Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóri Vísbendingar.
Anna Steinsen mun áfram gegna stöðu formanns stjórnar UN Women á Íslandi.
Stjórn UN Women á Íslandi er skipuð tíu einstaklingum. Auk ofangreindra skipa einnig Árni Matthíasson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Dr. María Rún Bjarnadóttir, Áslaug Eva Björnsdóttir, Fida Abu Libdeh og París Anna Bergmann stjórn samtakanna.
Stórt og mikilvægt afmælisár að baki
Á fundinum var farið yfir liðið starfsár, en árið 2025 var merkilegt afmælisár í sögu jafnréttisbaráttunnar. Liðin voru 50 ár frá fyrsta alþjóðlega kvennaári Sameinuðu þjóðanna, árið 1975. 30 ár voru frá samþykkt Peking-sáttmálans, sem markaði tímamót í jafnréttismálum, og 15 ár voru frá stofnun UN Women, sem fram að því hafði verið jafnréttissjóður innan Sameinuðu þjóðanna, en varð árið 2010 að sjálfstæðri undirstofnun Sameinuðu þjóðanna.
Verkefni landsnefndar UN Women á Íslandi á árinu 2025 voru fjölbreytt og krefjandi. UN Women á Íslandi skipulagði og leiddi heimsherferðina March Forward fyrir jafnrétti kynjanna. Markmið herferðarinnar var að fá fólk til að taka afstöðu gegn því bakslagi sem orðið hefur í jafnréttismálum á heimsvísu. Herferðin var unnin í samstarfi við auglýsingaskrifstofuna Pipar/TBWA og hófst formlega á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þann 8. mars. Ellefu landsnefndir UN Women tóku þátt í átakinu, sem og höfuðstöðvar UN Women í New York og landsskrifstofur UN Women um allan heim. Herferðin náði til ríflega 2,4 milljarða einstaklinga um allan heim, þar með talið í Kasakstan, Bandaríkjunum, Ástralíu, Frakklandi, Finnlandi, Ítalíu og víðar.
Herferðin hlaut fjárhagslegan stuðning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, Arion banka, Landsbankanum, Reykjavíkurborg, Festi og Sendinefnd ESB á Íslandi.
Sendir hæsta framlag til verkefna, áttunda árið í röð
Þá átti landsnefndin áfram sæti í framkvæmdastjórn Kvennaárs 2025 og kom að skipulagningu viðburða í tengslum við Kvennaárið 2025. Í tilefni af 30 ára afmæli Pekingsáttmálans stóð UN Women á Íslandi svo fyrir viðburði á Hilton Reykjavík Nordica í samstarfi við kínverska sendiráðið á Íslandi.
Árleg ljósaganga UN Women á Íslandi fór fram þann 25 nóvember. Árið 2025 var áhersla átaksins á stafrænt ofbeldi og var Ljósagangan gengin til minningar um baráttukonuna Ólöfu Töru Harðardóttur. Fjölskylda Ólafar Töru leiddi gönguna frá Arnarhóli og að Bríetartorgi ásamt fulltrúum UN Women á Íslandi, Bjarkarhlíðar, Druslugöngunnar, Íslandsdeildar Amnesty International, Kvenréttindafélags Íslands, Kvennaathvarfsins, Rótarinnar, Stígamóta, Vitundar og ÖBÍ.
Landsnefndin er þakklát öllum þeim er studdu við starfsemina á síðasta starfsári. Þessi mikilvægi stuðningur gerði UN Women á Íslandi mögulegt að senda hæsta framlag allra landsnefnda til verkefna UN Women, óháð höfðatölu – áttunda árið í röð!
