
Nemendur og kennarar við MH undirbúa gjörninginn
Framhaldsskólar um allt land tóku þátt í March Forward-herferð UN Women á Íslandi með samstöðugjörningi. Gjörningurinn fór fram miðvikudaginn 26. mars klukkan 12:00 í sextán framhaldsskólum.
Sextán framhaldsskólar um allt land taka þátt í samstöðugjörningnum „Backwards Walk“. Gjörningurinn var hluti af March Forward-heimsherferð UN Women á Íslandi sem var ýtt úr vör á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars.
March Forward er alþjóðlegt átak sem leitt er af UN Women á Íslandi og er markmið þess að skapa vitundarvakningu sem sameinar fólk til að taka afstöðu gegn bakslaginu sem orðið hefur í jafnréttismálum á heimsvísu og þeirri alvarlegu afturför kynjajafnréttis sem á sér stað í heiminum. March Forward herferðinn hefur m.a. náð til Kasakstan, New York, Frakklands, Ítalíu og Ástralíu.
„Ísland er það land í heiminum sem er næst því að ná fullu kynjajafnrétti og unga fólkið okkar gæti orðið fyrsta kynslóðin í sögunni til að búa við jafnrétti,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. „Ungt fólk og skólasamfélög um allan heim hafa í gegnum tíðina verið leiðandi þegar kemur að mannréttindabaráttu, til að mynda baráttunni fyrir réttindum svarts fólks í Bandaríkjunum, verið leiðandi afl í friðarhreyfingum og leitt baráttuna gegn loftslagsbreytingum. Það er ekki aðeins hvetjandi að sjá hversu margir skólar og nemendafélög brugðust strax við þegar hugmyndin var borin upp, heldur blæs það manni byr í brjósti.“
Eftirfarandi skólar tóku þátt í gjörningnum:
- Fjölbrautaskóli Vesturlands
- Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
- Fjölbrautaskóli Snæfellinga
- Fjölbrautaskóli Suðurlands
- Kvennaskólinn í Reykjavík
- Menntaskólinn við Hamrahlíð
- Menntaskólinn í Kópavogi
- Menntaskólinn í Reykjavík
- Menntaskólinn við Tröllaskaga
- Verkmenntaskóli Austurlands
- Verzlunarskóli Íslands
- Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
- Flensborgarskólinn
- Menntaskólinn á Akureyri
- Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Tækniskólinn
Af hverju er March Forward nauðsynlegt?
Konur og hinsegin fólk um allan heim standa frammi fyrir alvarlegu bakslagi mannréttinda sinna. Kynbundið ofbeldi hefur aukist í flestum ríkjum heims, bæði innan heimilis og á opinberum vettvangi og á 10 mínútna fresti er kona drepin af nákomnum aðila. Efnahagslegt misrétti heldur áfram að vaxa. Kynbundinn launamunur mun ekki jafnast út fyrr en eftir 135 ár að óbreyttu.
Konur og hinsegin fólk um allan heim standa frammi fyrir alvarlegu bakslagi mannréttinda sinna:
- 25% ríkisstjórna greindu frá afturför réttinda kvenna árið 2024.
- Á 10 mínútna fresti er kona drepin af nákomnum aðila.
- Kynbundið ofbeldi hefur aukist í flestum ríkjum heims, bæði innan heimilis og á opinberum vettvangi.
- Árið 2024 voru aðeins 5 konur kjörnar þjóðarleiðtogar í 31 forsetakosningu á heimsvísu, sem sýnir að hindranir standa enn í vegi fyrir að konur komist í leiðtogastöður.
- Efnahagslegt misrétti heldur áfram að vaxa. Konur vinna að meðaltali ólaunuð heimilisstörf að jafnvirði 1.400.000 milljarða á ári.
- 50% aukning hefur orðið á fjölda kvenna og stúlkna sem búa við átök síðastliðinn áratug.
- Kynbundinn launamunur mun ekki jafnast út fyrr en eftir 135 ár að óbreyttu.
- Víða hafa lög um kynrænt sjálfræði verið felld úr gildi
UN Women á Íslandi þakkar nemendum og starfsfólki skólanna kærlega fyrir þátttökuna. Við megum ekki við frekari bakslagi í jafnréttisbaráttunni. Sameinuð tökum við skrefið í átt að jafnrétti!

