
Vopnahlé hefur verið í gildi á Gaza frá því í október í fyrra, að minnsta kosti að nafninu til, því árásum á svæðið hefur ekki linnt. Frá október 2023 fram til desember 2025 voru 38.000 konur og stúlkur drepnar á Gaza hið minnsta, eða 47 konur og stúlkur dag hvern. Raunveruleg tala látinna er þó líklega mun hærri. Enn eru mörg lík föst undir rústum og eyðilegging heilbrigðisstofnana hamlar getu þeirra til að skrá dauðsföll og áverka.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu UN Women um stöðu kvenna og stúlkna á Gaza. Skýrslan var kynnt í Sameinuðu þjóðunum í Genf í morgun. Þar kemur einnig fram að minnst 11.000 konur og stúlkur á Gaza búa við fötlun eftir að hafa hlotið lífshættulega áverka í árásum Ísraelshers.
„Fleiri en 38.000 stúlkur og konur hafa verið drepnar á Gaza frá október 2023 til desember 2025 í loftárásum og landhernaði Ísraels – 22.000 konur og 16.000 stúlkur. Þetta þýðir að 47 konur og stúlkur hafa verið drepnar daglega,“ sagði Sofia Caltorp á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf í morgun.
Kerfisbundið ofbeldi á hendur kynheilbrigði kvenna og stúlkna
Í skýrslunni er stríðið á Gaza skilgreint sem kerfisbundið ofbeldi á hendur kynheilbrigði kvenna og stúlkna. Það er meðal annars vegna áhrifa þess á barnshafandi konur. Minnst 927 árásir hafa verið gerðar á heilbrigðisstofnanir og á sjúkrabíla frá upphafi stríðsins. Þar með talið eru árásir á fæðingardeildir og kvennadeildir. Í skýrslunni er minnst sérstaklega á árásina á al Basma IVF Centre tæknifrjóvgunarstöðina á Gaza, sem gerði út um drauma margra palestínskra hjóna um barneignir.
Um 130 fæðingar áttu sér stað dag hvern í mars 2025. Fjórðungur þeirra fæðinga var framkvæmdur með keisaraskurði. Slíkar aðgerðir auka enn frekar álag á þær sjúkrastofnanir sem enn eru að hluta til starfandi á Gaza. Takmörkuð sjúkrarými hafa jafnframt í för með sér að konur fá ekki tækifæri til að hvílast eftir fæðingu, né nægilega góða eftirfylgni. Það ógnar lífi bæði móður og barns. Á sama tíma glíma barnshafandi konur við langvarandi næringarskort, sem eykur líkur á fósturláti, lágri fæðingarþyngd barns og mæðradauða. Fæðingarlæknar og ljósmæður lýstu því að þau ynnu við óviðunandi aðstæður og oft á tvöföldum vöktum.
Margar konur hafa neyðst til þess að fæða börn sín heima, við óheilnæmar aðstæður. Konur sögðust jafnframt ekki hafa lengur aðgang að getnaðarvörnum né bráðaþjónustu.
Áætla að um 11.000 konur og stúlkur búi við fötlun eftir árásir Ísraels
Upplýsingar um fatlaðar konur og stúlkur má einnig finna í skýrslunni en erfitt hefur reynst að afla kynjaðra gagna hvað það varðar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áætlar að um 42.000 einstaklingar á Gaza búi nú við fatlanir eftir áverka sem þeir hlutu í árásum Ísraels. Öll þurfa á markvissri endurhæfingu að halda, flest til langframa. Erfitt er að meta fjölda fatlaðra kvenna og stúlkna á Gaza. Þó má varlega áætla að um 11.000 konur og stúlkur búi við fötlun eftir að hafa slasast í árásum Ísraels. UN Women segir mikilvægt að efla gagnaöflun á þessu sviði. Þannig væri hægt að skilja raunverulegt umfang þess skaða sem orðið hefur af árásum Ísraels.
