
Amina, ljósmóðir á flótta, vinnur nú við mæðravernd í flóttamannabúðum í El Fasher. Mynd:UNICEF/UNI941774/Mohammed Jamal
Stríðið í Súdan hefur verið kallað ein versta mannúðarkrísa heims í dag. Stríðið hefur staðið yfir í þrjú ár en vopnuð átök brutust út á milli súdanska stjórnarhersins og RSF-uppreisnarhersins 15. apríl 2023. Átökin hafa breiðst út um allt Súdan og ná til fjölda héraða. Afleiðingarnar eru skelfilegar: fjöldaflótti, gróf mannréttindabrot og viðvarandi fæðuskortur, þá einkum í Darfúr og Kordófan-héruðum. UN Women áætlar að um 17,1 milljón súdanskra kvenna og stúlkna sé í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð.
Milljónir á flótta
Milljónir kvenna og stúlkna hafa verið þvingaðar á flótta vegna átakanna. Um 4,3 milljónir kvenna og stúlkna eru á vergangi innan landamæra Súdans og milljónir til viðbótar hafa flúið til nágrannaríkja þar sem þær dvelja, oft við bágan kost, í flóttamannabúðum.
Flóttanum fylgir mikil hætta – þegar konur leita matar eða vatns eru þær berskjaldaðar fyrir árásum, nauðgunum, mannráni og kynbundnu ofbeldi. Í sumum tilfellum getur það kostað þær lífið.
Fjöldi kvenna og stúlkna hefur verið þvingaður á flótta aftur og aftur. Þær reyna eftir fremsta megni að annast börn sín og eldri fjölskyldumeðlimi þrátt fyrir ótryggt ástand og tálmanir á neyðaraðstoð. Umönnunarábyrgðin verður enn erfiðari við slíkar aðstæður.
Ofbeldi víðfeðmt vandamál
Nauðgunum og kynferðisofbeldi hefur verið beitt með markvissum hætti gegn konum og stúlkum af stríðandi fylkingum í Súdan. Konur eru beittar slíku ofbeldi inni á heimilum sínum, á flóttanum og þegar þær reyna að verða fjölskyldum sínum úti um mat og drykkjarvatn. Slíku ofbeldi er beitt til að ógna, niðurlægja og til að skapa sundrung innan fjölskyldna og samfélaga. Á fyrstu tveimur árum stríðsins þrefaldaðist eftirspurn eftir sálrænum stuðningi í kjölfar kynferðisofbeldis. Enn frekari eftirspurn varð á síðasta ári, samkvæmt samstarfsaðilum UN Women í Súdan.
Geta ekki nálgast þjónustu
Margar konur og stúlkur á átakasvæðum í Súdan hafa ekkert aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, neyðaraðstoð né helstu nauðsynjum. Virk átök, tálmanir og aukið óöryggi hafa útilokað þær frá aðgengi að vatni, mat, heilbrigðisþjónustu og vernd og skilið þær eftir varnarlausar og án nauðsynja.
Tálmun neyðaraðstoðar hefur, líkt og beiting nauðgana, verið hluti af stríðsrekstrinum í Súdan. Þetta hefur aukið enn frekar á neyð kvenna og stúlkna á svæðinu. Árið 2026 var 17,1 milljón kvenna og stúlkna í brýnni þörf fyrir neyðaraðstoð, þeirra á meðal var 1,1 milljón barnshafandi kvenna.
Hvað gerir UN Women?
UN Women er starfandi í Súdan og vinnur náið með yfir 45 kvenreknum félagasamtökum, í 15 héruðum, að því að veita sálræna aðstoð, áfallahjálp og neyðarvistir til kvenna og stúlkna. UN Women hefur einnig stutt við Women’s Advisory Group, sem samanstendur af 22 kvenreknum félagasamtökum, til að tryggja að þörfum kvenna sé mætt og afla gagna um verkefni sem þarfnast fjárstuðnings.
Hægt er að lesa nánar um stöðuna í Súdan og verkefni UN Women hér.
