Stríðið í Súdan er stríð á hendur konum og stúlkum

Heim / Fréttir / Stríðið í Súdan er stríð á hendur konum og stúlkum

Í þessari frétt er fjallað um kynferðisofbeldi.

Fleiri en 17 milljónir kvenna og stúlkna í Súdan eru í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð. Mynd: UN Women

„Nú þegar stríðið í Súdan hefur staðið yfir í þrjú ár er mikilvægt að vera skýr um hvaða afleiðingar það hefur fyrir konur og stúlkur. Því í grunninn er þetta stríð á hendur konum og stúlkum,“ sagði Anna Mutavati, svæðisstjóri UN Women í Austur- og Suður-Afríku, á fjölmiðlafundi sem fram fór í Palais des Nations í Genf í morgun.

„Dráp á almennum borgurum, fjöldaflótti og kynferðisofbeldi eru augljósir þættir stríðsáætlunarinnar í Súdan. Þessi óhæfuverk bætast ofan á hindranir á aðgengi að mannúðaraðstoð og þau eru framin með þeirri vitund að gerendur njóti algjörs refsileysis.

Fleiri en 17 milljónir kvenna og stúlkna eru í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð á þessu ári. Fleiri en 4,3 milljónir kvenna og stúlkna eru á flótta innan landamæra Súdans. Konur á flótta búa ekki við öryggi, heldur hafa verið beittar ofbeldi, þeim er nauðgað og þær drepnar. Konur og stúlkur hafa verið gerðar að skotmörkum þegar þær flýja átök, þegar þær leita að mat eða vatni, jafnvel þegar þær reyna að komast undir læknishendur.

Í skýrslu UN Women um stöðu kvenna og stúlkna í Súdan kemur í ljós að tíðni kynferðisofbeldis heldur áfram að aukast. Fjöldi þeirra kvenna og stúlkna sem þurfa á aðstoð að halda vegna kynferðisofbeldis hefur nærri tvöfaldast á síðustu tveimur árum og fjórfaldast frá upphafi stríðsins fyrir þremur árum.

Tveir þriðju allra kvenna sem sinna framlínustörfum og tóku þátt í könnun UN Women greindu frá auknum tilfellum kynferðisofbeldis árið 2025 og helmingur þeirra greindi frá aukningu það sem af er árinu 2026.“

Konur og stúlkur beittar hræðilegu ofbeldi

„Kynferðisofbeldi sem stríðsvopni hefur verið beitt til að vekja ótta, til þess að niðurlægja og valda sársauka og kúga heilu samfélögin. Það eru skrásett tilfelli um að konum hafi verið nauðgað í viðurvist fjölskyldumeðlima, og í kjölfarið beittar öðru líkamlegu ofbeldi. Fjölskyldumeðlimir sem reyna að stemma stigu við verknaðinum eru einnig beittir grófu ofbeldi. Margar konur og stúlkur búa við algjörlega óviðunandi aðstæður. Margar, sér í lagi þær er búa á átakasvæðum, hafa hvorki aðgang að mat, húsaskjóli né heilbrigðisþjónustu vegna stríðsástandsins.

Ein kona sem starfar í Vestur-Kordofan sagði frá því að í Babanusa væri aðeins ein heilsugæsla, með tveimur herbergjum – öðru fyrir fæðingar og hinu fyrir læknaviðtöl. Flestar konurnar sem komið er með eru þó látnar því leiðin er of löng.

13,6 milljónir kvenna og stúlkna þurfa fjárstuðning á þessu ári svo þær geti dregið fram lífið. Konur neita sér um mat, oft í marga daga. Það er mikil hætta á hungursneyð í Darfúr og Kordofan-héruðum.“

Alþjóðasamfélagið þarf að sýna sama hugrekki og súdanskar konur 

„Ég hef hitt marga þolendur, þeirra á meðal var ung stúlka sem var barnshafandi eftir að hafa verið nauðgað þegar vopnaðar hersveitir réðust á þorp hennar; 45 ára gömul kona sem hafði lifað af hrottalegt ofbeldi eftir umsátrið í Al Dilling í Suður-Kordofan á síðasta ári; og 25 ára gömul kona sem hafði lifað af umsátrið á El Fasher

Annað sem hefur einkennt þetta stríð er þáttur súdanskra kvenna þegar kemur að mannúðaraðstoð og friðarumleitunum. Þær eru á fremstu víglínu þar sem þær veita lífsbjargandi aðstoð til annarra kvenna. Þær starfa innan kvenrekinna félagasamtaka sem reka samfélagseldhús, stuðningshópa fyrir þolendur og styðja við fjölskyldur á flótta við að koma sér upp húsaskjóli. Þær hafa einnig látið að sér kveða þegar kemur að friðarviðræðum og samningsviðræðum svo tryggja megi greiðan aðgang neyðaraðstoðar inn á átakasvæði. En vegið er að starfsemi þessara samtaka nú þegar dregið er úr fjárframlögum til þróunaraðstoðar víða,” sagði Mutavati. 

Að lokum benti Mutavati á að ekki verði hægt að koma á friði ef engin aðkoma kvenna verður að formlegum friðarviðræðum. Alþjóðasamfélagið verði að bregðast við strax og sýna sama hugrekki og áræðni og súdanskar konur hafa sýnt.

„Við köllum eftir því að konur og stúlkur hljóti vernd; að gerendur verði látnir sæta ábyrgð; eftir auknu framlagi til kvenrekinna félagasamtaka í Súdan og að tryggt verði að konur taki fullan þátt í formlegum friðarviðræðum og uppbyggingu landsins.“

Hægt er að lesa meira hér.

Related Posts