Einn af hverjum fimm einstaklingum sem lifað hafa af stríðsástand þróar með sér geðraskanir

Heim / Fréttir / Einn af hverjum fimm einstaklingum sem lifað hafa af stríðsástand þróar með sér geðraskanir

16.750 konur og stúlkur í Líbanon eru neyddar á flótta dag hvern. Mynd: UNICEF/UNI956429

UN Women tekur undir‏ orð aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu ‏þjóðanna, sem lýst hefur ‏þungum áhyggjum og harmi vegna linnulausrar árásar Ísraels á Líbanon. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stofnunin sendi frá sér þann 10. apríl.

Mörg hundruð konur og stúlkur, í fjölda ríkja, hafa verið drepnar í árásum Bandaríkjanna og Ísraels. Í febrúar voru 168 skólastúlkur drepnar þegar sprengju var varpað á skóla þeirra í Minab í Íran. Síðan þá hafa 204 konur til viðbótar verið drepnar í Íran og 100 konur hafa verið drepnar í Líbanon. Þá hafa árásirnar kostað fjölda kvenna og stúlkna lífið í Bahrein, Írak, Ísrael, Kúveit, Palestínu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Milljónir kvenna og stúlkna hafa verið þvingaðar á flótta, þar af 1,6 milljónir í Íran og fjórðungur allra kvenna og stúlkna í Líbanon. Eyðilegging á þjónustumannvirkjum og öðrum innviðum á svæðinu takmarkar aðgengi fólks að húsaskjóli, hreinu neysluvatni og annarri lífsbjargandi þjónustu. Talið er að um 50.000 barnshafandi konur í Líbanon og 70.000 barnshafandi konur á Gaza hafi ekki aðgang að fæðingarþjónustu. Skemmdir á sjúkrahúsum skerða enn frekar aðgengi kvenna að heilbrigðisþjónustu, með skelfilegum afleiðingum.

Um 24 milljónir kvenna og stúlkna í Sýrlandi, Jemen, Líbanon, Palestínu og Írak búa við fæðuóöryggi sem ógnar heilsu þeirra og lífi. Á Gaza einvörðungu eru um 790 þúsund konur og stúlkur nærri hungursneyð. Staðan er grafalvarleg.

 

16.750 konur neyddar á flótta dag hvern í Líbanon

Réttindasamtök kvenna hafa leikið gríðarlega mikilvægt hlutverk í friðarumleitunum og mannúðaraðstoð á átakasvæðum við botn Miðjarðarhafs. Starfsgeta þeirra hefur þó verið verulega skert vegna þeirrar gríðarlegu öryggisógnar sem ríkir og þess litla fjármagns sem þau hafa yfir að ráða. Þá hefur konum tengdum þessum réttindasamtökum verið ógnað, þær sætt ólöglegri frelsissviptingu og gæsluvarðhaldi, og í sumum tilfellum verið drepnar.

Með auknum árásum Ísraels á Líbanon hafa um 16.750 konur og stúlkur verið neyddar á flótta dag hvern. 

Verst er ástandið í suðurhluta landsins. Konurnar og fjölskyldur þeirra hafast við í tímabundnum skýlum.

Fatan*, 42 ára gömul, flúði heimili sitt í Tyre til bæjarins Barja. Hún var örmagna og útkeyrð þegar hún kom á áfangastað. Fatan lagði á flótta með börn sín þrjú eftir að eiginmaður hennar lést í árásum Ísraels. Hún hefur hlotið aðstoð hjá Bishop Maroun Al Ammar Primary Healthcare Center í Barja sem hefur orðið að þjónustumiðstöð fyrir fjölskyldur á flótta. Þangað getur fólk leitað eftir læknisþjónustu og sálrænum stuðningi. Meirihluti þeirra sem þangað koma eru konur, margar eru einu fyrirvinnur fjölskyldna sinna eftir fráfall maka. Fatima, 28 ára, er á meðal starfsfólks Bishop Maroun Al Ammar Primary Healthcare Center, hvar hún starfar sem ráðgjafi. Hún lýsir yfir miklum áhyggjum af andlegri heilsu ungra stúlkna sem til hennar hafa leitað. Meirihluti þeirra segist upplifa mikinn kvíða, einbeitingarskort og vonleysi. „Á þeirra aldri ættu þær að horfa til framtíðarinnar fullar tilhlökkunar, þess í stað eru þær að reyna að lifa af krísuástand sem hefur engan sjáanlegan endi,“ útskýrir Fatima.

 

Falin krísa

Fatima Al Shamma, 28, félagsráðgjafi frá Beirút. Mynd:UN Women/Georges Roukoz.

UN Women hefur bent á að slæm andleg heilsa kvenna á átakasvæðum sé falin krísa sem hljóti litla athygli. Áföll tengd stríði, flótta og langvarandi kúgun hafa valdið milljónum kvenna og stúlkna í Mið-Austurlöndum gríðarlegum og óafturkræfum sálrænum skaða.

Einn af hverjum fimm einstaklingum sem lifað hafa af stríðsástand þróar með sér geðraskanir á borð við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu, geðhvarfasýki og geðrof. Aðeins 2 prósent þeirra fá þá aðstoð sem þau nauðsynlega þurfa á að halda.

Fatima segir Bishop Maroun Al Ammar Primary Healthcare Center reyna að koma til móts við þarfir kvenna á flótta og hafa aukið þjónustu til þeirra m.a. með hóphandleiðslu, öruggum rýmum og félagsstarfi. En starfsfólkið sjálft er þó einnig að þrotum komið. „Þetta starf krefst mikils af þér andlega. Við heyrum, sjáum og finnum þjáningu þeirra stöðugt. En við getum ekki hætt, það er ekki í boði,“ segir hún.

 

Hvað gerir UN Women í Líbanon?

UN Women hefur aukið stuðning sinn við teymi á borð við þau sem Fatima starfar fyrir, teymi sem veita konum á flótta sálræna aðstoð og sálfélagslegan stuðning. Stofnunin hefur einnig komið á fót öruggum rýmum þar sem konur geta komið saman, sagt sögu sína, tengst öðrum og fengið tilvísanir í frekari þjónustu. Markmiðið er að efla konur á flótta, styðja við þær og treysta félagsleg tengsl því margar upplifa sig einar á báti og einar með sorg sína og áföll.

*Ekki hennar raunverulega nafn.

Related Posts