fbpx

Covid-19 veikir stöðu kvenna

Heim / Fréttir / Covid-19 veikir stöðu kvenna

 

„Neyð ýtir alltaf undir kynjamismununun“ segir Maria Holtsberg, sérfræðingur í mannréttindum og neyð hjá UN Women í Asíu og Kyrrahafseyjum. Jafnframt segir hún að Covid-19 hafi ólík áhrif á konur og karla í Asíu og veiki stöðu kvenna á mörgum vígstöðvum.

Konur berskjaldaðri fyrir ofbeldi

Það er staðreynd að í neyðaraðstæðum eru konur berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi. Á meðan helsta verkefni lögreglu hefur verið að halda faraldrinum í skefjum hafa tilkynningar og fyrirspurnir þolenda vegna heimilisofbeldis til hjálparsamtaka í Peking þrefaldast eftir að sóttkví hófst. „Skerðing á þjónustu við konur, svo sem almennar heilsufarsskoðanir og þjónusta við konur sem verða fyrir ofbeldi, er okkur mikið áhyggjuefni“, segir Holtsberg.

Efnahagsleg áhrif á konur

Samkvæmt UN Women í Asíu hefur faraldurinn hvað mest efnahagsleg áhrif á konur. Víða í Austur-Asíu bera konur þyngstu byrði ólaunaðra umönnunarstarfa og eftir að skólar lokuðu hefur það haft viðamikil áhrif á stöðu kvenna á atvinnumarkaði, sem komast síður til vinnu en makar sínir. Konur frá Filipseyjum eru meirihluti þeirra sem vinna þjónustustörf en á meðan neytendur halda að sér höndum geta þær ekki unnið og þar af leiðandi ekki sent tekjur til fjölskyldna sinna. Þá verða konur á tímakaupi, eigendur smárra fyrirtækja og konur sem starfa í þeim verksmiðjum sem reiða sig á hráefni frá Kína einnig fyrir miklu tekjutapi.

 

Konur í framlínunni í Kína

Í kringum 400 þúsund konur frá Filipseyjum og Indónesíu starfa sem heimilishjálpir í Hong Kong. Staða þeirra gagnvart vinnuveitanda er mjög veik. Þær eru hvattar af yfirvöldum til að halda sig innandyra á frídögum sínum vegna smithættu og lenda því oft í að vinna ógreidda vinnu fyrir vinnuveitandann, eða er hótað uppsögn vinni þær ekki þá daga.

Heilsu þeirra er einnig ógnað ef vinnuveitendur þeirra gefa þeim ekki handspritt og andlitsgrímur, en verð á þessum vörum hefur farið upp úr öllu valdi og ekki á færi þeirra að kaupa þær sjálfar. Síðast en ekki síst eru konur 70% þeirra sem starfa í framlínunni í Kína um þessar mundir bæði innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar.

Neyð hefur ólík áhrif á líf kvenna og karlmanna

Mikilvægt er að þær stofnanir og aðilar sem veita mannúðaraðstoð starfi eftir kynjamiðuðum ferlum og átti sig á að neyðarástandið hefur ólík áhrif á líf kvenna og karlmanna. „Það er mikilvægt að mismunandi þarfir kvenna og karla verði hafðar í huga í komandi bataferli,“ segir Mohammad Naciri, svæðisstjóri UN Women í Asíu og í Kyrrahafseyjum en konum er oftar en ekki haldið utan við ákvarðanatökur í neyð.

Covid19 ýtir undir kynjamismunun í Asíu, heimilisofbeldi eykst í sóttkvíum og tekjumöguleikar kvenna skerðast frekar en karla. Eitt af mikilvægustu verkefnum UN Women er að tryggja að raddir kvenna í neyð heyrist, taka mið af þörfum þeirra og kvenmiða neyðaraðstoð.

Taktu þátt í að tryggja konum rödd og kvenmiðaða neyðaraðstoð á erfiðum tímum hér.
Related Posts