fbpx

90 prósent farandverkakvenna nauðgað á leið sinni

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / 90 prósent farandverkakvenna nauðgað á leið sinni

Migrant, asíaAlþjóðadagur farandverkafólks er í dag, 18. desember. Deginum er ætlað að vekja athygli á þeim hættum og mannréttindabrotum sem fjöldi farandverkafólks býr við. UN Women berst fyrir bættum hag farandverkakvenna. 

Farandverkafólk (e. migrants) er fólk sem yfirgefur heimili sín ýmist af frjálsum vilja (í leit að atvinnu, bættum efnahag, menntun) eða af neyð (flýr hamfarir, stríð, efnahagskreppur, mismunun). Erfitt er að áætla fjölda farandverkafólks í heiminum, því hluti þeirra ferðast ólöglega á milli landa og er því hvergi á skrá. Árið 2020 var áætlað að um 218 milljón einstaklingar, eða um 3,6 % jarðarbúa, hafi verið farandverkafólk.

Ítrekað beittar ofbeldi

Margt farandverkafólk yfirgefur heimili sín af sömu ástæðu og flóttafólk, en munurinn er sá að það sækir ekki um alþjóðalega vernd við komuna til gistilandsins. Líkt og konur á flótta, eru farandverkakonur útsettar fyrir hverskyns kynbundnu ofbeldi á leið sinni til gistilands. Ofbeldið er ekki einangrað tilfelli í lífi þeirra, heldur gerist ítrekað. 90% þeirra kvenna sem ferðast frá Norður Afríku til Ítalíu segja að þeim hafði verið nauðgað á einhverjum tímapunkti á leið sinni. Konur sem ferðast ólöglega á milli landa verða gjarnan fórnarlömb mansals sökum veikrar stöðu sinnar.

Hætturnar sem farandverkakonur búa við hafa margfaldast síðan COVID-19 heimsfaraldurinn skall á. Meðal annars vegna:

  • Ferðatakmarkana – sem urðu til þess að konurnar leituðu annara leiða til að komast milli landa, oft með aðstoð smyglara.
  • Aukinnar fátæktar – sem ýtti undir að konur þáðu vafasöm atvinnutilboð, mörg hver hættuleg og ólögleg.
  • Einangrunar – konur sem unnu sem launalausar húshjálpir voru lokaðar inni á heimilunum og sættu gjarnan ofbeldi og illri meðferð.

UN Women berst fyrir réttindum farandverkakvenna með ýmsum hætti. Mikil áhersla er lögð á að tryggja öfluga alþjóðlega vinnulöggjöf til að standa vörð um réttindi farandverkafólks. Þá er mikilvægt að efla þjónustu við þolendur ofbeldis sem UN Women gerir með stuðningi til kvenrekinna grasrótarsamtaka. UN Women vinnur einnig að því að afla gagna um farandverkakonur, því án þeirra er ekki hægt að móta öfluga löggjöf sem verndar þær.

Þú getur lagt þitt af mörkum með því að gerast ljósberi UN Women á Íslandi.

Gerast ljósberi

Related Posts
Haya Promenade, GazaEMC Rannsóknir