fbpx

Nýtt almenningsrými í Gaza hannað fyrir konur og stúlkur

Heim / Dæmi um styrktarverkefni / Nýtt almenningsrými í Gaza hannað fyrir konur og stúlkur

Haya Promenade, GazaHaya Promenade er nýtt almenningsrými í Gaza sem var hannað með þarfir kvenna og stúlkna að leiðarljósi. Verkefnið var styrkt af UN Women og er liður í því að gera borgarrými að öruggu svæði fyrir konur og stúlkur.  

Í upphafi verksins voru gerðar úttektir á um 134 almenningsrýmum í Gaza og ástæður þess að konur og stúlkur noti ekki slík svæði kannaðar. Niðurstöður leiddu í ljós að um 50% íbúa á Gaza telja sig ekki örugg í almenningsrýmum og forðast að nota þau.

Þegar vinna við hönnun Haya Promenade svæðisins hófst var leitað til ólíkra hópa eftir ráðgjöf, meðal annars kvenna og ungmenna. Þetta var gert því svæðið átti að uppfylla þarfir allra, en einnig hvetja konur og stúlkur til að láta sig borgarmál varða og raddir sínar hljóma.

Skorti sárlega örugg rými

Einn ráðgjafanna er 17 ára gömul stúlka sem sagði einstakt að koma á svæði sem hún hafði aðstoðað við að hanna.
„Þetta hefur vakið áhuga minn á borgarhönnun og hvernig megi fá almenning til að taka aukinn þátt í mótun opinberra rýma. Ég er stolt að hafa lagt mitt af mörkum til að gera borgina okkar að öruggara rými fyrir konur og stúlkur,“ sagði hún.

Svæðið sem Haya Promenade er staðsett á er eitt hið fátækasta á Gaza. Þar skorti sárlega vel hannað borgarrými þar sem konur og stúlkur gátu notið samvista með fjölskyldum sínum án þess að upplifa sig óöruggar.

Við hönnun svæðisins var séð til þess að aðgengi væri gott, að skiptiaðstaða væri til staðar sem og þjónustumiðstöð.

Eitt af verkefnum UN Women síðustu ár hefur verið að skapa öruggar borgir fyrir konur og stúlkur og er Haya Promenade hluti af því verkefni. Konur eru ólíklegri til að taka fullan þátt í samfélaginu upplifi þær sig óöruggar í almenningsrýmum. Þær eru líklegri til að takmarka ferðir utandyra, forðast almenningssamgöngur, fara síður út eftir myrkur og því líklegri til að einangrast.

Þú getur stutt verkefni sem þetta með því að gerast ljósberi UN Women á Íslandi

Related Posts
Gaza, Palestína, lænirMigrant, asía