fbpx

Konur á Gaza kalla eftir neyðaraðstoð og stuðningi

Heim / Dæmi um styrktarverkefni / Konur á Gaza kalla eftir neyðaraðstoð og stuðningi

Gríðarleg þörf er á fjármagni til verkefna UN Women í Palestínu. Íbúar á Gaza glíma enn við afleiðingar átakanna sem áttu sér stað í maí 2021. 253 Palestínumenn létu lífið í átökunum, þar af 38 konur og 66 börn. Tvö þúsund til viðbótar særðust í átökunum, helmingur þeirra konur og börn, og er áætlað að um 10% þeirra hafi hlotið varanlega örorku af sárum sínum.

UN Women í Palestínu styður við konur á Gaza með ýmsum hætti, en verkefnin eru mörg og stór og fjármagn skortir. Innviðir á svæðinu eru ónýtir, um 800 íbúðarhús urðu óíbúðarhæf eftir átökin og meira en þúsund heimili og verslanahúsnæði til viðbótar skemmdust töluvert. Vatnsból, rafstöðvar og vegir skemmdust og skólar og sjúkrahús glíma við rafmagnsleysi.

Þó karlar séu líklegri til að láta lífið í átökum á svæðinu, hafa þær gríðarlegar afleiðingar fyrir konur. Palestínskar ekkjur eru á meðal þeirra berskjölduðustu á svæðinu. Þær búa við tekjuleysi, hafa oft misst heimili sín og eru réttindalausar samkvæmt lögum þegar kemur að forræði yfir börnum sínum og eignum.

Þrengsli auka líkur á ofbeldi

Eftir átökin glíma um 90% heimila á Gaza við algjöran vatnsskort og konur eiga erfitt með að baða sig í sameiginlegum rýmum vegna hefða. Ekkjur neyðast oft til að flytjast inn á ættingja eða vini vegna stöðu sinnar. Þrengsli og tekjuleysi kvennanna veldur núningi við gistifjölskyldur og eykur líkur á kynbundnu ofbeldi. Meiri hluti kvenna á Gaza býr við atvinnuleysi og fátækt.

Gaza, stúlka, rústirKonur á Gaza hafa sjálfar kallað eftir matargjöfum og vatni, fjárstyrk, sæmdarsettum, sálrænni aðstoð og aðgangi að mæðravernd fyrir óléttar konur.

UN Women hlustar á raddir kvenna og hefur unnið hörðum höndum að því að:

  • Veita fjárstuðning til einstæðra kvenna svo þær geti keypt nauðsynjar og borgað leigu
  • Veita konum á vergangi farsíma svo þær geti nálgast upplýsingar og sálræna aðstoð sérfræðinga í gengum símatíma
  • Styðja atvinnutækifæri kvenna með sérmenntun, t.d. verkfræðinga, hönnuða og hagfræðinga, í verkefnum sem miða að uppbyggingu svæðisins
  • Þjálfa hjúkrunarfræðinga og ljósmæður
  • Veita ekkjum lögfræðiaðstoð

Þá leggur UN Women allt kapp á að palestínskar konur og stúlkur eigi sæti við samningsborðið þegar kemur að friðarviðræðum, uppbyggingu og neyðaraðstoð til að tryggja að þörfum þeirra sé einnig mætt.

Þú getur hjálpað með því að kaupa táknræna jólagjöf UN Women á Íslandi sem er sálræn aðstoð til palestínskrar konu.

Kauptu táknræna jólagjöf UN Women

Related Posts
Haya Promenade, Gaza