fbpx

UN Women 10 ára í dag

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / UN Women 10 ára í dag

Í dag eru tíu ár síðan UN Women var stofnað. Á þessum degi 2010 átti sér stað söguleg pólitísk viljayfirlýsing ríkja heims um að jafna hlut kynjanna og útrýma kynbundnu ofbeldi. Þar með var málefnum er varða jafnrétti og bætta stöðu kvenna og stúlkna skipað stærri sess í alþjóðasamfélaginu og hlaut loks viðurkenningu með viðeigandi fjármagni. Ísland var eitt þeirra ríkja sem fór þar fremst í flokki.

Kynjamismunun er rótgróin í öllum samfélögum heimsins. Á hverjum degi þurfa konur að þola ofbeldi og ójöfnuð, skort á atvinnutækifærum og lægri laun en karlmenn, hljóta hvorki menntun né heilbrigðisþjónustu og fá hvorki sæti við samningaborðið né koma að ákvarðanatökum. Heimsfaraldurinn sem heimurinn tekst á við í dag hefur því miður skerpt fyrir okkur stöðuna þar sem félagsleg og efnahagsleg áhrif Covid-19 á líf kvenna eru ótvíræð.

Þrátt fyrir að vera ung og lítil stofnun í samanburði við aðrar alþjóðastofnanir, hefur UN Women áunnist gríðarlegt afrek við að bæta stöðu, réttindi og lífsgæði kvenna og stúlkna. Líkt og þegar allsherjarþing Sþ ályktaði að limlestingar á kynfærum kvenna væru mannréttindabrot og að öll lönd skyldu herða löggjöf sem varða glæpinn árið 2012, bann við limlestingu á kynfærum kvenna var fært í lög í Gambíu árið 2015 en sama ár voru kvennamorð gerð refsiverð í Brasilíu. Bann hefur verið fært í lög við þvinguðum barnahjónaböndum Zimbabwe og Malaví auk þess sem Alþjóðaglæpadómstóllinn dæmdi í fyrsta sinn manneskju á forsendum kynferðisofbeldisbrota þegar fyrrum varaforseti Mið-Afríkulýðveldisins var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi m.a. fyrir að hafa beitt nauðgunum sem stríðsvopni. Svokölluð„nauðgunarlög“ voru afnumin í Líbanon, Túnis og Jórdaníu sem gerðu nauðgurum áður kleift að komast hjá því að verða sóttir til saka með því að giftast þolendum sínum og svo mætti lengi telja.

Við hjá UN Women vinnum að því að breyta þessu með því að veita tæknilegan og fjárhagslegan stuðning til verkefna sem efla réttindi kvenna, þátttöku þeirra í stjórnmálum, efnahagslegt sjálfstæði og stuðla að afnámi ofbeldis gegn konum og stúlkum með fræðslu að vopni og að útvega berskjölduðum konum á flótta og í neyð verkfæri í formi sjálfstyrkingar, öryggis, hagnýts náms og atvinnutækifæra með sjálfbærni að leiðarljósi í takt við Heimsmarkmiðin.

Íslensk stjórnvöld hafa frá upphafi stutt við bak UN Women. Það hefur utanríkisráðuneytið gert með fjárhagslegum stuðningi við verkefnin, sent starfsfólk á vettvang í samstarfslöndum UN Women, setið í stjórn UN Women og stutt dyggilega við landsnefnd UN Women á Íslandi. Við stöndum í þakkarskuld við utanríkisráðuneytið. Án stuðnings þess værum við ekki í þeirri stöðu að senda fjórða árið í röð  hæsta fjárframlag allra landsnefnda UN Women, óháð höfðatölu. En á þessum tíu árum hefur okkur hjá UN Women á Íslandi tekist að sautjánfalda framlag landsnefndarinnar til verkefna UN Women. Þeim árangri ber að fagna.

En þörfin hefur aldrei verið meiri en nú í kjölfar Covid-19 þar sem áhrif heimsfaraldursins hefur ómæld áhrif á líf kvenna um allan heim í ljósi aukins ofbeldis gegn konum og stúlkum um allan heim. Við þökkum okkar mánaðarlegu styrktaraðilum sem og frábæru samstarfsfólki í utanríkisráðuneytinu fyrir stuðninginn um leið og við vonumst við eftir áframhaldandi samstarfi.

Við horfum björtum augum til framtíðar því við saman erum við sterkari!

Related Posts