fbpx

Náðir þú að pakka? – ný herferð UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Náðir þú að pakka? – ný herferð UN Women á Íslandi
Náðir þú að pakka

Herferðinni er ætlað að fræða almenning um stöðu kvenna á flótta.

UN Women á Íslandi hrindir af stað kynningar- og fræðsluherferðinni Náðir þú að pakka? í dag.

Verkefnið er styrkt af utanríkisráðuneytinu og er ætlað að vekja almenning til umhugsunar um sértæk áhrif stríðs og átaka á líf kvenna og stúlkna. Samhliða fræðslunni verður efnt til söfnunar fyrir konur á flótta. UN Women á Íslandi biðlar til almennings að senda senda sms-ið KONUR í 1900 (1900kr.) og veita konum og stúlkum á flótta lífsbjargandi aðstoð.

Aldrei fleiri á flótta

Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum og í dag. Sameinuðu þjóðirnar telja að þeim muni fjölga umtalsvert samhliða auknum áhrifum loftslagsbreytinga, sem þegar er farið að gæta víða um heim. Vegna stríðsins í Úkraínu hafa nú þegar 8 milljónir flúið heimili sín, þar af eru 90% konur og börn.

Þegar fólk flýr heimili sín, sama hvort það sé vegna stríðsátaka, náttúruhamfara eða ofsókna, gefst sjaldan tími til að pakka, hvað þá að hugsa fyrir nauðsynjum. Sjaldan er hugsað fyrir sértækum þörfum kvenna og stúlkna og er átakinu Náðir þú að pakka? ætlað að upplýsa almenning um stöðu kvenna og stúlkna á flótta, mikilvægi þess að tekið sé mið af sértækum þörfum þeirra þegar neyðaraðstoð er veitt og hversu mikilvægt það er fyrir heilsu og líf kvenna á flótta að hafa aðgang að hreinlætisvörum, sálfræðiaðstoð, upplýsingum um réttindi sín, fjárhagsaðstoð og heilbrigðisþjónustu.

Ólík áhrif eftir kyni

Stríðsátök hafa ólík áhrif á líf fólks eftir stöðu þeirra og kyni. Á meðan karlmenn eru líklegri til að deyja í átökum þá eru konur og stúlkur líklegri til að verða fyrir kynbundnu ofbeldi, mansali og búa við viðvarandi skort þegar stríðsátök geisa. Nú þegar eru farnar að berast fréttir af því að konur og börn á flótta frá Úkraínu hverfi í ringulreiðinni sem ríkir á lestastöðvum og móttökustöðum. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hefur það færst í aukana að konur á átakasvæðum og flótta séu þvingaðar til að „greiða“ fyrir húsaskjól, mat og vatn með líkama sínum.

UN Women beitir sér af alefli fyrir því að aðstæður séu viðunandi fyrir konur og börn þeirra á flótta.  Tryggja verður öryggi þeirra og koma þannig í veg fyrir að einstaklingar og skipulagði hópar nýti sér neyð kvenna.

Þú getur hjálpað með því að senda sms-ið KONUR í 1900 (1.900 kr)

Related Posts
Alina, ÚkraínaÚkraína, Kiev, byrgi