fbpx

UN Women styður við jaðarsettustu hópa Úkraínu

Heim / Dæmisögur / UN Women styður við jaðarsettustu hópa Úkraínu
Úkraína

Rústir eftir stríðsátökin í Úkraínu.

Úkraínsku félagasamtökin Club Eney eru meðal þeirra sem hlotið hafa fjárstuðning frá Styrktarsjóður Sameinuðu þjóðanna til afnáms ofbeldis gegn konum (UN Trust Fund to End Violence against Women).

Samtökin starfa í þágu jaðarsettustu kvenna Úkraínu, m.a. kvenna með HIV, heimilislausra kvenna (margar sem höfðu flúið átökin á Krímskaga), kvenna sem neyta ávanabindandi lyfja og kvenna í kynlífsiðnaði og vændi.

Club Eney hefur þurft að bregðast hratt við og aðlaga starfsemi sína að gjörbreyttum aðstæðum eftir að stríð braust út í landinu svo þau geti áfram veitt konum þjónustu og ráðgjöf. Áður höfðu samtökin þurft að bregðast við breyttu landslagi sökum COVID-19 heimsfaraldursins.

Það er gríðarlega mikilvægt að jaðarsettir samfélagshópar gleymist ekki á tímum átaka, líkt og hætta er á. UN Women hefur frá upphafi unnið náið með grasrótarsamtökum í hverju landi þar sem UN Women starfar. Kvenrekin grasrótarsamtök búa yfir staðbundinni þekkingu, lausnum og grunnstoðum sem UN Women styrkir með fjármagni, leiðsögn og búnaði.

 

Almenningur vill ekki styðja við þessar konur

„Fjármagn til okkar var takmarkað fyrir, en hvarf nánast þegar átökin hófust. Almenningur vill ekki styðja við konur í vændi, konur sem neyta eiturlyfja eða konur með HIV. Þess vegna þurftum við nauðsynlega á alþjóðlegum fjárstuðningi að halda,“ sagði formaður samtakanna Vielta Parkhomenko um fjármagnið frá Styrktarsjóði Sameinuðu þjóðanna.

COVID-19 heimsfaraldurinn hafði þegar skert aðgengi þessara kvenna að lífsbjargandi þjónustu, m.a. vegna reglna um fjöldatakmarkanir, sóttkví og einangrun, og almennra lokana.

Með fjárstyrknum frá Styrktarsjóður Sameinuðu þjóðanna gat Club Eney aðlagað starf sitt að breyttum aðstæðum og starfað áfram þrátt fyrir COVID-19 takmarkanir. Stuðningurinn gerir þeim kleift að halda áfram að þjónusta jaðarsettar konur á stríðstímum. Samtökin starfa meðal annars í borgunum Kyiv, Poltava, Cherkasy, Kryvyi Rih og Ternopil

Hvað er Styrktarsjóður Sameinuðu þjóðanna?

Styrktarsjóður Sameinuðu þjóðanna til afnáms ofbeldis gegn konum (UN Trust Fund to End Violence against Women) hefur starfað frá árinu 1996 og er markmið hans að uppræta ofbeldi gegn konum og stúlkum um allan heim.  Helstu áherslur sjóðsins eru að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum, tryggja þolendum viðeigandi aðstoð og stuðla að sterkari löggjöf og framfylgd laga um ofbeldi gegn konum.

Ofbeldi gegn konum er eitt útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum en ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Á tímum átaka margfaldast tíðni heimilisofbeldis og kynbundins ofbeldis, sérstaklega í garð berskjaldaðra hópa. Það er því afskaplega mikilvægt að samtök á borð við Club Eney geti áfram veitt þjónustu og stuðning á tímum sem þessum.

Related Posts