fbpx

Stríð í Úkraínu: Óskir kvenna hunsaðar

Heim / Fréttir / Stríð í Úkraínu: Óskir kvenna hunsaðar
Úkraína, Kiev, byrgi

Úkraínsk kona með barn sitt á spítala sem hefur verið færður í neðanjarðarbyrgi. Mynd/Alex Lourie

Starf félagasamtaka í Úkraínu hefur riðlast í stríðsátökunum sem nú geisa, einmitt þegar mesta þörfin er á slíkri þjónustu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UN Women í Úkraínu.

Ástæðan er að starfsfólk félagasamtaka hefur sjálft verið neytt á flótta, hefur ekki aðgang að rafmagni eða öðrum búnaði til að sinna starfi sínu eða kemst ekki að heiman vegna linnulausa árása rússneskra hersveita. Í neyðarástandinu sem nú hefur einnig borið á því að reynslulítil félagasamtök og sjálfboðaliðar hafa stigið inn til að veita neyðaraðstoð.

Fólk í neyð mætir fordómum

„Sem þjálfaður aðili í skipulagningu neyðar- og viðbragðsáætlana hef ég séð fjölda sjálfboðaliða, hópa og samtaka sem aldrei hafa unnið við þessar aðstæður, nú stíga inn án þess að hafa fullan skilning á þörfum þeirra sem þurfa á aðstoð að halda. Þetta hefur orðið til þess að mannréttindi hafa verið brotin, fólk í neyð hefur mætt fordómum og verið vísað burt og viðkvæmir hópar gleymast. Það er gríðarlega mikilvægt að veita viðbragðsaðilum rétta þjálfun, stuðning og eftirlit,“ sagði einn viðmælenda UN Women, sem starfað hefur hjá úkraínskum félagasamtökum um árabil.

UN Women hefur veitt móttökuríkjum á borð við Moldóvu ráðgjöf og aðstoð við móttöku fólks á flótta með kvenmiðaða neyðaraðstoð að leiðarljósi. Þá vinnur UN Women í Úkraínu að því að tryggja að þörfum allra kvenna sé mætt, þ.m.t. kvenna með fatlanir, aldraðra kvenna og karla, LGBTQ og Róma kvenna.

Hverjir verða eftir?

Úkraína, faðmlag

Kona kveður karlkyns ástvin við landamæri Úkraínu og Moldóvu.

Konur og karlar um alla Úkraínu búa nú í stöðugum ótta um líf sitt og fjölskyldna sinna. Þau sem geta, hafa flúið heimili sín og standa frammi fyrir áður óþekktum áskorunum. En fjöldi fólks hefur ekki tök á því að flýja og neyðist til að vera um kyrrt í hersetnum borgum. Aðrir verða eftir til að sinna framlínustörfum, m.a. hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, læknar og slökkviliðsfólk.

Neyðarskýli og neðanjarðarbyrgi eru óaðgengileg fólki með skerta hreyfigetu og erfitt er fyrir þennan hóp að skýla sér á heimilum sínum. Það sama á við um aldraða og sjúklinga. Þessir einstaklingar eiga einnig erfitt með að verða sér úti um mat og aðrar nauðsynjar, sérstaklega þegar þjónusta til þeirra liggur niðri.

Óttast um börn sín

Samkvæmt skýrslu UN Women er mesta þörfin á lífsbjargandi aðstoð á borð við matvæli (sérstaklega barnamat), lyf, hreinlætisvörur (þar með talið bleium) og vatn. Félagasamtök sem vinna með UN Women í Úkraínu segja að konur óski fyrst og fremst eftir nauðsynjum fyrir börn sín og óttast stöðugt um líf þeirra og heilsu, sérstaklega heilsu ungbarna og nýbura.

Áföllin og streitan sem fylgja stríði hafa gríðarleg áhrif á heilsu óléttra kvenna og mjólkandi kvenna. Streitan getur orðið til þess að fæðing fari fyrr af stað og að þær framleiði ekki næga mjólk fyrir nýfædd börn sín. Víða er þurrmjólk og barnamatur ófáanlegur. Aukin tíðni mæðra- og ungbarnadauða er því miður fylgifiskur átaka.

Þarfir kvenna hunsaðar

Fjöldi félagasamtaka höfðu miklar áhyggjur af þolendum heimilis- og kynferðisofbeldis og segja tíðni kynbundins ofbeldis hafa aukist síðan átök hófust. Allt forvarnarstarf og þjónusta liggur niðri vegna stríðsins, sem ógnar lífi kvenna og stúlkna. Félagasamtök höfðu jafnframt þungar áhyggjur af mansali við landamæri Úkraínu og hvöttu viðbragðsaðila til að vera vakandi fyrir hættumerkjum og berskjölduðum einstaklingum svo hægt sé að bregðast við og bjarga lífum kvenna og barna.

Félagasamtök vöktu jafnframt athygli á því að konur hafa ítrekað verið útilokaðar frá friðarviðræðum fram að þessu og að óskir þeirra hafi verið hunsaðar. Þess í stað hafa þarfir sjálfboðaliða sem nú berjast við innrásarher Rússa verið settar í forgang. Ákall kvenna eftir lyfjum fyrir börn og aldraða, þurrmjólk, barnamat og hreinlætisvörum hafa því mætt daufum eyrum.

UN Women tryggir kvenmiðaða neyðaraðstoð í Úkraínu og nágrannalöndum. Þú getur hjálpað með því að senda sms-ið KONUR í síma 1900.

Related Posts
Vera, Úkraína, Moldóva