fbpx

Stríð í Úkraínu: „Ég upplifi öryggi og er hætt að fá kvíðaköst“

Heim / Fréttir / Stríð í Úkraínu: „Ég upplifi öryggi og er hætt að fá kvíðaköst“

Vera flúði stríðið í Úkraínu ásamt börnum sínum fjórum. Hún fann skjól í Moldóvu.

Liðinn er mánuður frá því að rússneski herinn hóf innrás sína inn í Úkraínu. Síðan þá hafa um 3,5 milljónir verið neyddar á flótta og talið er að um 12 milljónir sitji fastar í umsetnum borgum og bæjum án rafmagns, hita eða vista.

Meiri hluti þeirra er flúið hafa átökin í Úkraínu hafa leitað skjóls í Póllandi, eða um 2 milljónir. Moldóva er það land sem hefur tekið á móti næstmestum fjölda fólks, eða rúmlega hálfri milljón.

Sex dagar ofan í kjallara

Vera er ein þeirra sem flúði til Moldóvu frá Kyiv. Hún er einstæð fjögurra barna móðir.

„Fyrst þegar átökin hófust, földum við okkur í kjallaranum. Við vorum þar í sex daga. Á tímabili gullu neyðarvarnirnar fjórum sinnum á dag og börnin gátu ekkert sofið. Það var engan mat að fá og ég vissi ekki hvernig ég gæti útvegað matvörur því verslanir voru tómar, það seldist allt upp. Sem einstæð móðir með fjögur börn og ekkert bakland, þá tókst mér ekki að útvega okkur nægar vistir.“

Fékk taugakippi og kvíðaköst

Þegar sprengjuregnið færðist nær heimili Veru og barna hennar, ákvað hún að flýja í von um að koma börnum sínum í öruggt skjól.

„Við yfirgáfum Kyiv klukkan 7 að morgni og komum að landamærum Moldóvu sólarhring síðar. Ég ætlaði fyrst til Póllands, en fólk þurfti að bíða í þrjá daga á lestarstöðinni til að komast þangað.“

Landamæraverðir, sjálfboðaliðar og félagasamtök hafa tekið á móti þeim sem flúið hafa stríðið til Moldóvu.  Vera segir hjálpsemi fólks og gæska þess hafa komið sér í opna skjöldu.

„Við fengum mat, heita drykki og hlýjan fatnað við komuna. Börnin mín höfðu ekki fengið heita máltíð í meira en viku. Ég upplifi öryggi hér. Ég er hætt að fá taugakippi og kvíðaköst. Ég er loksins róleg.“

Upplýsingar mikilvægar við komuna

UN Women í Moldóvu og UNICEF hafa tekið höndum saman til að tryggja að þörfum kvenna og barna á flótta sé mætt. Þar sem úkraínskum karlmönnum á aldrinum 18 til 60 hefur verið meinað að yfirgefa landið, eru konur og börn meiri hluti fólks á flótta.

Meðal verkefna UN Women er að dreifa fatnaði, sæmdarsettum og neyðarpökkum til kvenna á flótta og veita þeim fjárhagsaðstoð.  Þá hefur UN Women barist fyrir því að kvenmiðuð neyðaraðstoð sé veitt. Mikilvægt er að konur hljóti strax upplýsingar um réttindi sín, húsaskjól og áfallahjálp við komuna til gistilands.

Þú getur hjálpað með því að senda sms-ið KONA í síma 1900.

Related Posts
Úkraína, faðmlagLandamæri Úkraínu og Moldóvu