fbpx

UN Women styður við mæður í Kyrgistan

Heim / Dæmisögur / UN Women styður við mæður í Kyrgistan

kursanali, kyrgistanUN Women styður við ungar mæður sem stunda jarðaberjaræktun í hrjóstugum sveitum Kyrgistan. Konurnar hljóta fjármagn, fræðslu og tól til að stunda sjálfbæra ræktun.

Hin 24 ára gamla Kursanali kyzy Begimai, býr í litlu þorpi á landamærum Kyrgistan og Tadsjikistan. Svæðið er hrjóstugt og harðbýlt og þar er mikið um átök. Flestir vinnufærir karlmenn þorpsins hafa flutt búferlum til Rússlands til að afla tekna og skilja konur og börn eftir.

Þrátt fyrir ungan aldur fer Kursanali fyrir hópi fimm ungra mæðra sem komið hafa á fót jarðaberjaræktun á landskika rétt utan við þorpið. Verkefnið er styrkt af UN Women sem veitti hópnum fjármagn til að kaupa þúsund jarðaberjaplöntur, áburð og tól til að hefja ræktun. Kursanali og samtarfskonur hennar hlutu jafnframt fræðslu í ræktun og rekstri.

Orðin virkari í samfélaginu

Fyrsta uppskera kvennanna var um þrjú tonn af jarðaberjum og deildist ágóðinn jafnt á milli þeirra. Kursanali segir vinnuna vera uppsprettu mikillar gleði fyrir sig og aðra þorpsbúa.

UN Women hefur veitt Kursanali og samstarfskonum hennar áframhaldandi þjálfun og ráðgjöf til að viðhalda rekstrinum.

„Líkt og margar konur, var ég óörugg þegar ég kynnti hugmynd mína fyrir UN Women. Ég átti erfitt með að koma fyrir mig orði og horfa í augun á þeim sem ég talaði við. Þökk sé UN Women hef ég hlotið fræðslu og fyrir vikið orðið virkari í samfélagi mínu. Ég hef lært mikilvægi þess að stunda sjálfbæran búskap en jafnframt áttað mig á mikilvægi þess að konur séu þátttakendur í friðarviðræðum og uppbyggingu á átaksvæðum eins og þessu. Fjárhagslegt sjálfstæði kvenna er lykilþáttur í að örva hagvöxt og stuðla að öryggi.“

Ein af megináherslum UN Women er að efla fjárhagslegt sjálfstæði kvenna og stuðla að aukinni atvinnuþátttöku þeirra. Það gerum við með verkefnum sem þessum, þar sem konur hljóta fjárstuðning og fræðslu til að koma á fót eigin rekstri. Þannig geta konurnar séð sér og fjölskyldum sínum farborða, eflt nærsamfélög sín og lifað sjálfstæðu lífi.

Hér má lesa nánar um hlutverk UN Women.

Related Posts