fbpx

Umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála – réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála – réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda

Umsögn Aflsins, Kvenfélagasambands Íslands, Kvennaathvarfsins, Kvennaráðgjafarinnar, Kvenréttindafélags Íslands, Rótarinnar, Stígamóta og UN Women á Íslandi um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð sakamála (réttarstaða brotaþola, fatlaðra og aðstandenda).

Undirrituð félög og samtök fagna því að þessi frumvarpsdrög líti loks dagsins ljós en telja að ekki hafi verið gengið nægilega langt í að tryggja réttarstöðu brotaþola í réttarferlinu. Mikilvægt er að hafa í huga að langflestar tilkynningar kvenna um ofbeldi til lögreglu fara aldrei fyrir dóm. Tölur hafa t.d. sýnt að aðeins 17% tilkynntra nauðgunarmála fara fyrir dóm en restin er ýmist felld niður af saksóknara eða lögregla hættir rannsókn. Aðeins 13% enduðu með sakfellingu.[1] Mikilvægt er að bæta réttarstöðu brotaþola til að veita lögreglu, ákæruvaldi og dómsvaldi aðhald í málum sem þessum.

Vakin er athygli á því að níu konur hafa nú kært íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti sínum til réttlátrar málsmeðferðar. Konurnar eiga það sammerkt að vera brotaþolar sem kærðu nauðganir, heimilisofbeldi og/eða kynferðislega áreitni til lögreglu en málin voru felld niður af ákæruvaldinu. Að mati íslensku kvennahreyfingarinnar sýna málin hvernig íslenska ríkið brýtur kerfisbundið gegn rétti kvenna sem kæra kynbundið ofbeldi og bregst þannig skyldum sínum til að tryggja rétt kvenna á Íslandi til réttlátrar málsmeðferðar samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu. Þrátt fyrir að Mannréttindadómstóllinn sé umsetinn og vísi langflestum málum frá, hefur hann nú tekið a.m.k. fjórar af kærunum til 1. afgreiðslu.

Konurnar sem hafa kært íslenska ríkið voru á aldrinum 17-42 ára þegar þær kærðu brotin og voru flestar kærurnar lagðar fram hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögmaðurinn Sigrún Ingibjörg Gísladóttir hjá Rétti fór yfir málin og sendi kærurnar til Mannréttindadómstólsins. Við ítarlega yfirferð hennar komu í ljós ýmsar brotalamir í rannsókn og meðferð málanna innan réttarvörslukerfisins sem varða helst rannsókn lögreglu, mat á sönnunargögnum og túlkun á vilja löggjafans.

 Íslenska ríkið brýtur á konum með eftirfarandi hætti

Alvarlegir annmarkar á rannsókn lögreglu:

  • Mál fyrntist í höndum lögreglu á meðan það var til rannsóknar vegna þess hve lengi dróst að boða sakborning í skýrslutöku.
  • Almennt tóku málin alltof langan tíma í rannsókn lögreglu.
  • Sakborningar höfðu marga mánuði til að undirbúa sig fyrir skýrslutöku og samræma frásagnir vegna seinagangs lögreglu við rannsókn mála.
  • Vitni sem höfðu lykilþýðingu í málum voru ekki boðuð í skýrslutöku og litið var framhjá skýrslum vitna sem studdu við frásögn brotaþola.

Lítið sem ekkert sönnunargildi er lagt í þau sönnunargögn sem til staðar eru í málunum:

  • Þau sönnunargögn sem eru konum tiltæk, í málum sem oft gerast bakvið luktar dyr, eru ekki tekin alvarlega, þá einkum vottorð sálfræðinga. Þetta samræmist ekki lagabreytingu á Alþingi (l. nr. 61/2007) þar sem áhersla var lögð bæði á líkamlegar og andlegar afleiðingar.
  • Líkamlegir áverkar virðast heldur ekki teljast fullnægjandi. Dæmi voru um að það hefði þótt ósannað að brotaþolinn hefði veitt mótspyrnu þrátt fyrir líkamlega áverka.
  • Í öðrum tilvikum var litið fram hjá sönnunargögnum á vettvangi, s.s. myndum eða myndbandsupptökum tekin á síma sem og ummerkjum s.s. brotnum gluggum.
  • Játningar sakborninga voru ekki teknar til greina.
  • Neitun sakbornings virðist vega þyngra en framburður brotaþola sem studdur er með vitnum og sönnunargögnum og er það mikil hindrun gegn réttlátri málsmeðferð fyrir brotaþola.

Gengið gegn vilja löggjafans við túlkun laganna:

  • Í mörgum málum var einblínt á hvort að sakborningur hafi mátt gera sér grein fyrir því að brotaþoli hafi ekki veitt samþykki, t.d. sökum ölvunarástands, fremur en á það hvort hann hafi fengið samþykki, eins og lögin kveða á um.
  • Þrátt fyrir að í nýrri nauðgunarlöggjöf komi fram að það teljist brot ef blekkingum er beitt til að ná fram samþykki leit saksóknari svo á að ekki væri unnt að ganga lengra í túlkun en eldri lög og fyrri framkvæmd gerði ráð fyrir.
  • Í einu máli þótti sannað að um ofbeldi hefði verið að ræða en þar sem ofbeldið þótti ekki nægilega alvarlegt var það talið fyrnt og fellt niður.

Brot á ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu

Þau ákvæði í Mannréttindasáttmála Evrópu sem vísað var til í flestum kærum eru eftirfarandi:

  1. gr. um réttinn til lífs. Með niðurfellingu á kærum brotaþola hefur íslenska ríkið skotið sér undan skyldu sinni til að vernda konur sem þolendur kynferðisbrota í íslenska réttarkerfinu.

 

  1. mgr. 6. gr. um réttláta málsmeðferð. Með því að meta sönnunargögnin sem ófullnægjandi og fella mál brotaþola niður hefur ákæruvaldið í raun tekið sér dómarahlutverk og svipt þær að fullu rétti til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómstólum.

 

  1. mgr. 8. gr. um friðhelgi einkalífs. Með því að fella niður málin hefur íslenska ríkið brotið gegn jákvæðum skyldum sínum þar sem að það lét fyrirfarast að sakborningur yrði gerður ábyrgur fyrir gjörðum sínum fyrir dómstólum, og ekki verndað andlega eða líkamlega friðhelgi brotaþola. Einnig var vísað til til 1. og 2. mgr. 5. gr. Istanbúl-sáttmálans.

 

  1. gr. um áhrifaríkt og raunhæft úrræði. Þar sem að ákæruvaldið mat og rannsakaði mál brotaþola ekki nægilega, hafa réttindi þeirra samkvæmt Mannréttindasáttmálanum ekki verið tryggð. Konurnar höfðu því ekkert raunhæft tækifæri eða úrræði til að leita réttlætis fyrir dómstólum, enda hefur einungis ríkið saksóknarvald.

 

  1. gr. um bann gegn mismunun. Brotin gegn framangreindum ákvæðum beinast kerfisbundið að konum og því sæta konur sem brotaþolar annarri meðferð en karlmenn sem brotaþolar. Mál sem varða ofbeldisbrot gegn konum sæta sjaldan ákærumeðferð og leiða í undantekningartilvikum til sakfellinga.

 

  1. gr. um bann við pyndingum og vanvirðandi meðferð. Í einstaka tilvikum var rannsókn lögreglu svo ábótavant að það telst vanvirðandi. Eitt mál fyrndist í fórum lögreglu og í öðru máli var brotaþola meinað að leita sér læknisaðstoðar.

Tillögur

Eins og rakið hefur verið þykir okkur ljóst að ríkið bregst skyldum sínum á kerfisbundinn hátt, sviptir konur rétti til réttlátrar málsmeðferðar og brýtur gegn rétti kvenna til einkalífs. Eins og frumvarpið stendur nú er helst lagt til að auka upplýsingaskyldu lögreglu til brotaþola og aðgang réttargæslumanns að gögnum, og að tryggja að bótakrafa brotaþola komist að á áfrýjunarstigi jafnvel þótt ákærði hafi verið sýknaður í héraði sem og að brotaþoli geti notið aðstoðar réttargæslumanns við skýrslutöku fyrir Landsrétti þótt krafa hans sé ekki til meðferðar þar. Undirrituð samtök telja að þessar réttarbætur ekki nægilegar heldur þurfi frumvarp um bætta stöðu brotaþola að taka einnig til eftirfarandi þátta:

  • Að brotaþolar sem kæra kynferðisbrot eða ofbeldi í nánum samböndum verði veitt aðild að sakamálinu, ekki síst í því skyni að styrkja réttarstöðu þeirra gagnvart ríkinu og veita lögreglu og ákæruvaldi aðhald í málinu. Í dag eru brotaþolar einungis vitni í eigin máli og hafa því lítinn rétt á að fylgjast með framgangi málsins eða gera athugasemdir. Einnig verður að tryggja að ríkið geti verið skaðabótaskylt ef brotið er á rétti brotaþola til réttlátrar málsmeðferðar.

 

  • Að brotaþolum verði veitt kæruheimild á rannsóknarstigi telji brotaþoli að verið sé að fyrirgera rétti um réttláta málsmeðferð og að lögfest verði hlutlæg skaðabótaábyrgð þegar slæleg vinnubrögð lögreglu og ákæruvalds valda því að ekki er hægt að ákæra í máli.

 

  • Að brotaþolar njóti áfram aðstoðar réttargæslumanns þó svo mál, sem er samsett úr nokkrum kæruliðum, klofni og þeim kæruliðum sem eftir standi fylgi ekki réttargæslumaður.

 

  • Að brotaþolar fái bætur ef refsing ákærða er lækkuð sökum langs málsmeðferðartíma.

 

  • Að brotaþolar í kynferðisbrotamálum og málum er varða ofbeldi í nánum samböndum hafi rétt á gjafsókn og ríkissjóður ábyrgist dæmdar bætur í einkamálum gegn tjónvöldum með sambærilegum hætti og kveðið er á um í lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota. Þetta myndi veita brotaþolum aukinn möguleika á lagalegri viðurkenningu á því óréttlæti sem þær voru beittar, sé sakamálarannsókn á broti gegn þeim hætt eða mál fellt niður.

Til viðbótar þarf að tryggja að auknu fjármagni sé veitt í rannsókn og saksókn mála sem varða kynferðisbrot og ofbeldi í nánum samböndum í þeim tilgangi að auka gæði málsmeðferðarinnar og stytta málsmeðferðartíma.

Virðingarfyllst,

Aflið – samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi

Kvenfélagasamband Íslands

Kvennaráðgjöfin

Kvenréttindafélag Íslands

Rótin – félag um konur, áföll og vímugjafa

Samtök um kvennaathvarf

Stígamót

UN Women á Íslandi

 

[1] Hildur Fjóla Antonsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Einkenni og meðferð nauðgunarmála sem bárust lögreglu á árunum 2008 og 2009. Innanríkisráðuneytið, Reykjavík 2013.

Related Posts