fbpx

Þú ert einskis virði þegar þú ert ólöglegur innflytjandi

Heim / Dæmisögur / Þú ert einskis virði þegar þú ert ólöglegur innflytjandi

Eþíópía, UN Women styður við rekstur kvennaathvarfa í Eþíópíu. Margar konur sem þangað leita hafa verið beittar ofbeldi af hendi smyglara sem hafa lofað þeim störfum í efnuðum Arabíuríkjum. Ein þeirra er Alem Kifle, sem yfirgaf heimili sitt í Eþíópíu þegar COVID-19 heimsfaraldurinn skall á landinu.

Atvinnuleysi í Eþíópíu jókst til muna í heimsfaraldrinum og Kifle gat ekki séð börnum sínum fyrir mat. Landamæralokanir heftu för fólks og í örvæntingu leitaði Kifle til smyglara sem lofuðu fólki atvinnu í öðrum ríkjum. För Kifle endaði þó í þriggja mánaða fangavist í ókunnugu landi áður en hún var send aftur heim til Eþíópíu.

„Lögreglan lét okkur sofa við hliðina á klósetinu. Við þurftum að grátbiðja þá um mat og vatn. Þú ert einskis virði þegar þú ert ólöglegur innflytjandi,“ lýsir Kifle. „Ég var blásnauð þegar ég kom heim og ég var þunglynd. Sonur minn bjó á götunni og dóttir mín bjó hjá fyrrum nágranna. Fjölskylda mín vildi ekkert með mig hafa.“

Áföll og ofbeldi

Talið er að um 550 þúsund einstaklingar hafi snúið heim til Eþíópíu frá Arabíuskaganum í kjölfar COVID-19. Mörg þeirra urðu fyrir miklum áföllum og ofbeldi á leið sinni. Aðrir höfðu sætt illri meðferð af hendi vinnuveitanda. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda fólks sem þurfti á aðstoð að halda, var fátt um úrræði. Neyðarskýli fyrir þolendur voru of þéttskipuð, ekki var hægt að huga að sóttvörnum og starfsfólk var bæði fáliðað og illa þjálfað.

UN Women hefur á undanförnum árum stutt við rekstur kvennaathvarfa í Eþíópíu í samstarfi við þarlend grasrótarsamtök. Þar hljóta konur öruggt skjól, læknis- og sálfræðiþjónustu sem og starfsþjálfun. Konurnar fá einnig aðgang að smálánum til að koma undir sig fótunum að nýju.

Kifle hlaut þjálfun í rekstri og matvælaframleiðslu á meðan hún dvaldi í athvarfinu og rekur nú lítið kaffihús í heimabæ sínum. Börnin hennar tvö búa hjá henni. Hún segir að verkefni UN Women hafi veitt henni kraft og hvatningu til að takast á við framtíðina.

Skýrsla UN Women frá árinu 2016 sýnir að sú þjónusta sem þolendur ofbeldis vega hvað mest í Eþíópíu er sálfræðiaðstoð. UN Women hefur því lagt ríka áherslu á að efla sértæka þjálfun til ráðgjafa og sálfræðinga sem starfa með þolendum ofbeldis. Árið 2020 hlutu 34 ráðgjafar í Eþíópíu sértæka þjálfun frá UN Women svo þeir gætu betur mætt þörfum þeirra sem til þeirra leita.

Með því að gerast ljósberi styður þú við verkefni sem þessi. Þitt framlag getur skipt sköpum.

Related Posts