fbpx

Ingibjörg Sólrún og Árni ný í stjórn UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Ingibjörg Sólrún og Árni ný í stjórn UN Women á Íslandi
Stjórn 2022

Ný stjórn var kosin á aðalfundi UN Women á Íslandi þann 28. apríl.

Aðalfundur UN Women á Íslandi fór fram í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í dag 28.apríl þar sem ársskýrsla og ársreikningur samtakanna var kynntur.

Arna Grímsdóttir, stjórnarformaður UN Women á Íslandi, flutti stutta tölu um helstu verkefni og árangur í starfi samtakanna á árinu 2021. Þar bar hæst að UN Women á Íslandi hefur haldið áfram að stækka þrátt fyrir krefjandi aðstæður vegna heimsfaraldursins.

Hæsta framlag allra landsnefnda óháð höfðatölu

UN Women er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur alfarið í þágu kvenna og jafnréttis og er leiðandi í baráttunni fyrir bættri stöðu kvenna og stúlkna um allan heim.

Sjötta árið í röð sendi landsnefnd UN Women á Íslandi hæsta fjárframlag allra tólf landsnefnda til alþjóðlegra verkefna UN Women, óháð höfðatölu. Það er árangur sem samtökin eru afar stolt af en þakklæti til þeirra þúsunda einstaklinga sem hafa stutt samtökin um árabil var formanni stjórnarinnar efst í huga.

UN Women á Íslandi jók tekjur sínar um 13% á árinu og sömuleiðis fjárframlög til verkefna um 12%. Á árinu 2021 skráðu 1.159 manns sig sem Ljósbera, mánaðarlega styrktaraðila UN Women á Íslandi sem teljast nú hátt í tíu þúsund talsins. Ljósberar UN Women eru bakbein samtakanna og ómetanlegur stuðningur þeirra gerir UN Women á Íslandi kleift að senda þessi háu framlög.

Árið 2021 markaðist af áframhaldandi heimsfaraldri og bakslagi í jafnréttisbaráttunni. Þörfin fyrir UN Women hefur sjaldan verið meiri en einmitt nú. Stjórn og starfsfólk UN Women á Íslandi líta á hlutverk sitt alvarlegum augum, sérstaklega í ljósi þeirra vofveiflegu aðstæðna sem uppi eru í Úkraínu og Afganistan svo dæmi séu tekin.

UN Women á Íslandi mun halda áfram að beita sér fyrir því að kvenmiðuð neyðaraðstoð sé sett í forgrunn og veita tæknilegan og fjárhagslegan stuðning til verkefna sem ætlað er að efla réttindi kvenna, þátttöku þeirra í stjórnmálum, efnahagslegt sjálfstæði og stuðla að afnámi ofbeldis gegn konum og stúlkum.

Ingibjörg Sólrún og Árni Matthíasson ný í stjórn

Breytingar urðu á stjórn landsnefndarinnar en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Árni Matthíasson, blaðamaður taka sæti í stjórn samtakanna, en Bergur Ebbi Benediktsson og Kristján Hjálmarsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Ný stjórn er því eftirfarandi:

  • Arna Grímsdóttir, lögmaður (formaður stjórnar)
  • Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og svæðisstjóri UN Women
  • Kristín Ögmundsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri
  • Áslaug Eva Björnsdóttir, stafrænn leiðtogi
  • Árni Matthíasson, netstjóri mbl.is
  • Ólafur Elínarson, aðstoðarmaður félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra
  • Fönn Hallsdóttir, fulltrúi ungmennaráðs
  • Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri
  • Anna Steinsen, tómstunda- og félagsmálafræðingur

Við hjá UN Women á Íslandi þökkum þeim tæplegu 10.000 mánaðarlegu styrktaraðilum sem styðja við bága stöðu kvenna og stúlkna víða um heim með mánaðarlegu framlagi sem og öðrum styrktaraðilum og velunnurum.

Related Posts
UN Women Eþíópía, matarúthlutanirAlina, Úkraína