fbpx

Ágóði FO bolsins til „gleymdu kvennanna“ í Mið-Afríkulýðveldinu

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Ágóði FO bolsins til „gleymdu kvennanna“ í Mið-Afríkulýðveldinu

Konur og stúlkur í Mið-Afríkulýðveldinu eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir ofbeldi en á hverri klukkustund er kona eða stúlka þar í landi beitt kynferðisofbeldi. UN Women á Íslandi hóf í dag sölu á FO bolnum 2021 og rennur allur ágóði til verkefna UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu.

Hver er staðan í Mið-Afríkulýðveldinu?
Talað er um Mið-Afríkulýðveldið sem gleymda ríkið þar sem staða íbúa þjóðarinnar er sérstaklega slæm. UN Women gleymir hins vegar ekki og er á staðnum.
Íbúar landsins hafa glímt við spillingu, skæruliðahópa, stjórnarfarslegan óstöðugleika, þjóðernisátök og stríðsástand í áratugi. Innviðir eru í lamasessi og fátækt er gríðarleg þrátt fyrir mikil náttúruleg auðæfi.
• 2,8 milljónir íbúa Mið-Afríkulýðveldisins (57% þjóðarinnar) þurfa neyðaraðstoð
• 742.000 manns er á verga ngi innan eigin ríkis – 60% þeirra eru konur
• Á hverri klukkustund er kona eða stúlka í CAR beitt kynferðisofbeldi

Hver er staða kvenna og stúlkna?
Í þessum átökum hafa nauðganir verið notaðar sem stríðsvopn og glímir fjöldi kvenna við skelfilegar afleiðingar þess. Á átakatímum og í kjölfar Covid-19 hefur heimilisofbeldi, þvinguð barnahjónabönd og kynlífsþrælkun aukist til muna. Konur glíma þar að auki við sárafátækt og skert réttindi og tækifæri.

Konur í Mið-Afríkulýðveldinu eru á meðal fátækustu íbúa landsins og að auki ómenntaðar og ólæsar að mestu. Engu að síður eru það einna helst konur sem sjá fjölskyldum sínum farborða, efla samfélagsleg tengsl og hafa verið í lykilhlutverki í því að koma á samskiptum milli ólíkra samfélagshópa í landinu í átökunum.

UN Women er á staðnum og veitir þolendum ofbeldis sálræna aðstoð og aðstoðar þá við að sækja sér læknis- og lögfræðiaðstoð. Einnig veitir UN Women heilbrigðisstarfsfólki þjálfun við að bera kennsl á ummerki heimilisofbeldis og hvernig best sé að nálgast þolendur. UN Women starfar einnig með stjórnvöldum að því að styrkja og breyta lögum landsins til að vernda konur gegn kynbundnu ofbeldi.

Með því að kaupa FO bolinn veitir þú „gleymdu konunum“ í Mið-Afríkulýðveldinu von og neyðaraðstoð. Tryggðu þér eintak á unwomen.is og í verslunum Vodafone. Takmarkað upplag!

Vodafone á Íslandi kostaði framleiðslu á FO bolnum og rennur því allur ágóði beint til verkefna UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu.

Með því að kaupa FO bolinn veitir þú konum í Mið-Afríku Lýðveldinu neyðaraðstoð og von

Related Posts
FO bolurinn 2021