UN Women á Íslandi leitar að hörkuduglegu og skemmtilegu fólki til að sinna fjáröflun og kynningarstarfi fyrir samtökin í sumar.
Starfið felst í því að kynna starfsemi UN Women og bjóða fólki að gerast styrktaraðilar. Um er að ræða hálft starf og er unnið frá 14 -18 alla virka daga auk nokkurra laugardaga.
Hæfniskröfur:
· Mjög góð samskiptahæfni og hrífandi framkoma
· Samviskusemi og áreiðanleiki
· Reynsla af sölumennsku er kostur
· Áhugi á jafnréttismálum er kostur
Við hvetjum jafnt stelpur sem stráka til að sækja um.
Umsóknir sendist á Snædísi Baldursdóttur, fjáröflunarstýru, á snaedis@unwomen.is.
Related Posts