fbpx

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2016 – óskum eftir tilnefningum

Heim / Fréttir / Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2016 – óskum eftir tilnefningum

hvatn.verdlaun2Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök Atvinnulífsins og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð óska eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2016 sem verða afhent þann 25. maí næstkomandi.

Verðlaunin afhendir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem hafa stuðlað að jafnrétti á markvissan hátt innan sinna fyrirtækja og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.

 

Leitað er eftir tilnefningum frá fyrirtækjum þar sem áhersla er lögð á neðangreinda þætti í starfsemi þeirra:

· Tekið er mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins

· Jafnrétti kynjanna er í hávegum haft í innri og ytri samskiptum fyrirtækisins

· Jöfn hlutföll kynjanna í stjórn, stjórnendastöður og aðrar almennar stöður

· Auknum möguleikum beggja kynja til starfsframa

· Jöfnum launum kynjanna

· Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir   fyrirtækið og samfélagið

Sérstaklega er leitað að fyrirtækjum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

· Stefna fyrirtækis í jafnréttismálum hefur skýran tilgang og markmið

· Jafnrétti hefur fest rætur og sýnt er fram á varanleika

· Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af jafnrétti

· Jafnréttissýnin er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki

· Sýnt er frumkvæði og nýsköpun sem stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna

Frestur til að senda inn tilnefningar er til 9. maí. Tilnefningar skulu sendast með því að fylla út eftirfarandi eyðublað.

Related Posts