fbpx

UNWÍ og Eignarhaldsfélagið Hornsteinn í samstarf

Heim / Fréttir / UNWÍ og Eignarhaldsfélagið Hornsteinn í samstarf

UN Women á Íslandi hefur gert tveggja ára samstarfssamning við Eignarhaldsfélagið Hornstein í tengslum við jafnréttisátakið Kynslóð Jafnréttis. Samstarfið felst í því að Hornsteinn styrkir starf UNWÍ sem miðlar upplýsingum út frá málefnasviðum samtakanna. Markmið með samstarfinu er að stuðla að menningu jafnréttis innan móður- og dótturfélaga, og samfélaginu í heild, með þátttöku alls starfsfólks.

UN Women á Íslandi mun veita fræðslu sem snýr m.a. að því hvernig Hornsteinn getur haft áhrif á kynjajafnrétti með starfsemi sinni. Áhersla verður lögð á að ná til karlkyns starfsmanna í fyrirtækinu og hvetja þá til þátttöku í aðgerðum sem miða að því að jafna hlut kynjanna.

„Það er afar ánægjulegt að taka þátt í jafnréttisátakinu með UN Women á Íslandi enda höfum við sett okkur skýra stefnu um að jafna hlut kynjanna, bæði hvað varðar launajafnrétti en ekki síður til að auka hlut kvenna í starfsmannahóp okkar. Með samstarfinu bindum við vonir um að ná betra samtali og öflugri fræðslu um mikilvægi jafnrétti til að stuðla að framförum samfélaginu öllu til heilla.“ Segir Þorsteinn Víglundsson forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf.

Um jafnréttisátkið Kynslóð jafnréttis

Kynslóð Jafnréttis (e. Generation Equality) er fimm ára jafnréttisátak leitt af UN Women og er jafnframt stærsta jafnréttisátak sem UN Women hefur ráðist í. Meginmarkmið átaksins er að vinna að úrbótum á þeim sviðum sem hallar mest á konur og stúlkur með þátttöku ólíkra hagaðila.

UN Women á Íslandi setti fram skuldbindingu í þágu jafnréttisátaksins, sem snýr að því að fá íslensk fyrirtæki til liðs við sig við að hraða breytingum á málefnum kvenna og stúlkna um allan heim, með því að styðja starf íslensku landsnefndarinnar fjárhagslega.

,,Kynslóð jafnréttis er alþjóðlegt jafnréttisátak og er markmið þess að ríki, alþjóðastofnanir, frjáls félagasamtök og fyrirtæki sameinist um aðgerðir að úrbótum á sviðum þar sem enn hallar á konur og stúlkur í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Það er UN Women á Íslandi mikils virði að vera í samstarfi við fyrirtæki, líkt og Hornstein, sem setur jafnréttismál á oddinn í sínu starfi og vill jafnframt með samstarfinu hafa margföldunaráhrif út í heim”segir Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Related Posts