fbpx

Takið vel á móti þeim

Heim / Fréttir / Takið vel á móti þeim

Frá vinstri: Ólöf, Vera hópstjóri, Sigríður Þóra, Dima og Helga hlakka til að heimsækja þig í vetur

Landsnefnd UN Women á Íslandi fagnar 30 ára afmæli í ár og af því tilefni mun öflugur hópur ungs fólks á vegum samtakanna setja sterkan svip á borgina á næstu vikum. Þau munu ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu, kynna starfsemi UN Women fyrir landsmönnum og bjóða þeim að taka þátt í starfinu með okkur á þessum merku tímamótum.

Mánaðarleg framlög frá einstaklingum eru dýrmætasta og árangursríkasta fjáröflunarleið landnefndarinnar og hefur fjöldi þeirra sem leggja samtökunum lið með mánaðarlegum framlögum aukist gríðarlega frá ári til árs. Allt frá upphafi hafa götukynnar samtakanna gegnt lykilhlutverki við að afla mánaðarlegra styrkja til verkefna UN Women.

„Götukynningar eru frábær leið til að eiga innihaldsrík samtöl við landsmenn um kynjajafnrétti. Fólk hefur tekið þeim gífurlega vel og í gegnum tíðina hafa götukynningar verið árangursríkasta leið samtakanna til að safna fjármagni sem gera konum um allan heim kleift að öðlast tækifæri til að taka virkan þátt í leik og starfi án ótta við ofbeldi,“ segir Snædís Baldursdóttir, fjáröflunarstýra UN Women á Íslandi.

Endilega takið vel á móti þessu frábæra fólki þegar það bankar upp á.Við vonum innilega að þú takir þátt með okkur í að efla starfið og styðja við bak stúlkna og kvenna um allan heim.

Related Posts