fbpx

Magnaðir sigrar 2018

Heim / Fréttir / Magnaðir sigrar 2018

MeToo byltingin hefur svo sannarlega opnað umræðuna um kynbundið ofbeldi gegn konum og stendur óneitanlega upp úr þegar litið er til árangurs í jafnréttismálum á árinu. Byltingin hefur átt sér stað um allan heim, sem dæmi fer hún fram í Egyptalandi undir nafninu #AnaKaman og í Tyrklandi #SendeAnlat. Hún hefur hleypt af stað háværri umræðu um kynferðislega misnotkun og ýtt valdamiklum körlum frá stjórnborðinu á sviði stjórnmála, skemmtanaiðnaðar og fjölmiðlunar. Umræðan þrýstir um leið á ríkisstjórnir heimsins og stjórnir stórfyrirtækja við að breyta stefnum, gildum og þeirri ómenningu sem fengið hefur að viðgangast hingað til.

Markverður sigur í jafnréttisbaráttunni átti sér stað á árinu þegar Jasídakonan Nadia Murad og læknirinn Denis Mukwege hlutu friðarverðlaun Nóbels. Murad var handsömuð af liðsmönnum Íslamska ríkisins í ágúst 2014 og hneppt í kynlífsánauð í borginni Mosul. Denis Mukwege stofnaði 1999 Panzi sjúkrahúsið í austurhluta Kongó og starfrækir enn, þar sem þúsundir kvenna hafa leitað aðhlynningar eftir nauðganir vígamanna á svæðinu. Þau hafa bæði barist ötullega gegn nauðgunum og kynferðisofbeldi í stríði.

Fjölmargar byltingar á götum úti áttu sér stað þann 8. mars 2018 á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Fimm milljónir spænskra femínista flykktust á götur Madridar og mótmæltu kynbundnu ofbeldi og eitruðum karlmennskum undir slagorðinu „without us the world stops“. Mótmælagöngur áttu sér einnig stað víða í Bandaríkjunum, í Argentínu, Chile og sem dæmi í Suður-Afríku þar sem marserað var undir formerkjum #TotalShutdown. Í Túnis var gengið og krafist jafns erfðarétts karla og kvenna og í Tælandi fór netbyltingin #DontTellMeHowtoDress eins og eldur um sinu samfélagsmiðla.

Stacey Cunningham

Kona að nafni Stacey Cunningham mölbraut glerþak Kauphallarinnar í New York á árinu er hún varð fyrst kvenna til að gegna starfi forstjóra. Því ber að fagna þrátt fyrir að það hafi ekki tekið nema 226 ár. Holly Ridings var valin fyrst kvenna til að gegna stöðu forstjóra NASA auk þess sem hin kanadíska Donna Strickland hlaut Nóbelsverðlaun í eðlisfræði fyrst kvenna í 55 ár en áður höfðu eingöngu Marie Curie (1903) og Maria Goeppert-Mayer (1963) hlotið Nóbel áður.

Konur ruddu sér víða til rúms í stjórnmálum á árinu. Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja Sjálands, tók fæðingarorlof á árinu og varð jafnframt fyrsti þjóðarleiðtogi heims til að gera slíkt. Kynjahlutföll á þingi eru jöfnust í Rúanda, svo Kúbu, því næst Bólivíu svo Mexíkó sem komst óvænt á listann og tók fjórða sætið á árinu. Í Rúmeníu, Trinidad og Tobago, Barbados og Eþíópíu fögnuðu landsmenn einnig sínum fyrstu kvenþjóðarleiðtogum á árinu.

Ýmsar lagabreytingar í átt að bættum heimi kvenna og stúlkna áttu sér einnig stað á árinu. Í Marokkó voru ný lög samþykkt sem kveða á um þyngri dóma á þeim sem beita ofbeldi gegn konum. Í Palestínu hafa lög verið afturkölluð sem koma í veg fyrir að nauðgarar verði dæmdir fyrir nauðgun ef þeir giftast þolendanum. Bæði sænska og spænska þingið samþykktu lög á árinu sem kveða á um að óheimilt er að stunda kynlíf með manneskju sem ekki hefur veitt skýrt samþykki. Ef skýrt samþykki liggur ekki fyrir er um nauðgun að ræða. Hæstiréttur Indlands úrskurðaði á árinu að kynlíf samkynhneigðra verði ekki lengur glæpsamlegt þar í landi og síðast en ekki síst leiddi Nýja Sjáland í lög sérstakt veikindaleyfi fyrir fólk sem hefur búið við heimilisofbeldi. Fólk fær tíu daga leyfi sem á að gera þvíkleift að fara frá maka sínum, finna sér nýtt heimili og til að vernda sig og börn sín.

Við hjá UN Women á Íslandi þökkum innilega fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða og hlökkum til að halda baráttunni áfram með ykkur á nýju ári.

Related Posts