fbpx

Götukynnar UN Women á Íslandi sýnilegir næstu vikur

Heim / Fréttir / Götukynnar UN Women á Íslandi sýnilegir næstu vikur

Mánaðarlegir styrktaraðilar eru bakbein og hjarta UN Women á Íslandi

Götukynnar UN Women á Íslandi verða á ferð og flugi um höfuðborgarsvæðið næstu misserin, bæði til þess að kynna starf UN Women á Íslandi og bjóða fólki að gerast Ljósberar, sem eru mánaðarlegir styrktaraðilar samtakanna.

Starfsfólk okkar er kyrfilega merkt UN Women á Íslandi og verður á ferðinni næstu misseri, meðal annars í miðbæ Reykjavíkur, við sundlaugar og verslunarmiðstöðvar ásamt því að ganga hús úr húsi.

Allt frá upphafi hafa götukynnar samtakanna gegnt lykilhlutverki við að afla mánaðarlegra styrkja til verkefna UN Women á heimsvísu.

Hefur fjöldi þeirra einstaklinga sem leggja samtökunum lið með mánaðarlegum framlögum aukist gríðarlega meðfram aukinni vitund um starfsemi UN Women.

Related Posts