fbpx

Sumarstörf UN Women – Reykjavík og Akureyri

Heim / Fréttir / Sumarstörf UN Women – Reykjavík og Akureyri

Viltu breyta heiminum?

Við hjá UN Women á Íslandi viljum bæta við okkur hörkuduglegu og skemmtilegu fólki í fjáröflunarteymið á líflega vinnustaðnum okkar í sumar. Starfið felur í sér að kynna starfsemi UN Women og bjóða fólki að gerast styrktaraðilar með götukynningum.

Hæfniskröfur:

  • Mjög góð samskiptahæfni og hrífandi framkoma
  • Samviskusemi og áreiðanleiki
  • Reynsla af sölumennsku er kostur
  • Áhugi á starfsemi UN Women er kostur
  • Góð íslenskukunnátta

Um er að ræða hálft starf og er vinnutími frá 14 til 18 alla virka daga. Tvö teymi verða starfrækt; á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Snædís Baldursdóttir, fjáröflunarstýra UN Women á Íslandi, í síma 552-6200.

Sækja um hér

Related Posts