Anna Steinsen, Fida Abu Libdeh og Áslaug Eva kosnar í stjórn UN Women

Heim / Fréttir / Anna Steinsen, Fida Abu Libdeh og Áslaug Eva kosnar í stjórn UN Women

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi UN Women á Íslandi sem haldinn var með fjarfundi þann 29. apríl. Þrír nýir stjórnarmeðlimir voru kosnir í stjórn samtakanna þær; Anna Steinsen tómstunda- og félagsmálafræðingur og einn eigandi KVAN, Fida Abu Libdeh, frumkvöðull og stofnandi Geosilica og Áslaug Eva Björnsdóttir, stafrænn leiðtogi á skrifstofu borgarstjóra.

Fanney Karlsdóttir, Soffía Sigurgeirsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Formaður stjórnar er Arna Grímsdóttir, aðrir stjórnarmeðlimir eru Bergur Ebbi Benediktsson, Kristín Ögmundsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Ólafur Elínarson, Ólafur Þ. Stephensen og Sigríður Þóra Þórðardóttir, einnig formaður Ungmennaráðs UN Women á Íslandi.

Umsvif UN Women á Íslandi hafa aukist undanfarin ár og er eitt stærsta hlutverk samtakanna að afla fjár til alþjóðlegra verkefna UN Women. Fimmta árið í röð sendir UN Women á Íslandi hæsta framlag allra tólf landsnefnda stofnunarinnar til verkefna UN Women víða um heim, óháð höfðatölu.

Þrátt fyrir heimsfaraldurinn COVID-19 og meðfylgjandi efnahagsþrengingar varð 7% aukning á framlögum til UN Women á milli ára. Á árinu bættust rúmlega 1.500 mánaðarlegir styrktaraðilar í hóp ljósbera, styrktaraðila UN Women sem teljast nú hátt í tíu þúsund talsins. Ljósberar eru á öllum aldri og búa í öllum landshlutum en þetta árið voru karlar áberandi í hópi nýrra ljósbera, eða 40% þeirra.  Sértæk áhrif COVID-19 á konur og stúlkur hefur ómæld áhrif á líf kvenna í ljósi aukins ofbeldis gegn konum og stúlkum um allan heim. Þörfin fyrir stuðning hefur því aldrei verið meiri en nú. UN Women á Íslandi þakkar velunnurum samtakanna ómetanlegan stuðning. Stjórn og starfsfólk UN Women  horfir björtum augum til framtíðar og gefur allt í botn í baráttunni fyrir bættum hag og velferð kvenna og stúlkna.

Related Posts