Suður Darfúr: Að styðja við konur, er að styðja við samfélög

Heim / Dæmisögur / Suður Darfúr: Að styðja við konur, er að styðja við samfélög
Bab Al-Ginan Súdan, Darfúr

Bab Al-Ginan er frá Darfúr héraði í Súdan.

Bab Al-Ginan er 42 ára gömul ekkja frá Suður Darfúr héraði í Súdan. Eiginmaður hennar lést í borgarastríðinu sem staðið hefur yfir í héraðinu frá árinu 2003.

Bab Al-Ginan er ein þeirra kvenna sem notið hafa góðs af verkefnum UN Women sem styðja við fjárhagslegt sjálfstæði kvenna.

 

Barist um beitlendi

Vopnuð átök hafa geisað í Darfúr síðan 2003. Síðast í mars á þessu ári réðust vígahópar á níu þorp í Vestur Darfúr og brenndu þau til grunna. 17 létust í átökunum og 12.500 einstaklingar voru hraktir á flótta.

Loftslagsbreytingar hafa ýtt enn frekar undir átök á svæðinu, þar sem ólíkir hópar takast á um beitlendi og þverrandi vatnsból. Þá tók efnahagur Súdan dýfu í byrjun þessa árs sem hefur aukið enn á atvinnuleysi, verðbólgu og sárafátækt í landinu.

Glíma við loftslagsbreytingar

Konur eru um 75% bænda í Darfur héraði. Loftslagsbreytingar hafa skapað áður óþekktar áskoranir fyrir konurnar, sem reyna að rækta landskika sína þrátt fyrir ítrekaða þurrka og langvarandi vatnsskort.

Bab Al-Ginan var á meðal 64 kvenna sem tóku þátt í námskeiði á vegum UN Women sem hafði það markmið að efla fjárhagslegt sjálfstæði og atvinnuþátttöku kvenna.

Samvinnuverkefni voru kynnt fyrir þátttakendum og hlutu þær grunnþekkingu í markaðs- og sölumennsku sem og þjálfun í fjármálum. Markmið námskeiðsins var að fræða konur um hvernig þær geti hámarkað tekjur sínar og stutt við fjölskyldur sínar og nærsamfélög.

Tók að sér sex munaðarlaus börn

Bab Al-Ginan og geitur, Darfúr

Bab Al-Ginan ásamt geitum sínum.

Þátttakendum var skipt í þrjá hópa: Fyrsti hópurinn fékk þjálfun í framleiðslu á hnetuolíu, annar hópurinn fékk þjálfun í háriðn, og þriðji hópurinn fékk tvær geitur.

Bab Al-Ginan fékk tvær geitur sem henni hefur tekist að nýta vel. Með sölu á geitamjólk tókst henni að fjárfesta í kornrækt sem hefur gefist vel. Velgengni hennar varð til þess að hún gat tekið að sér börn sem höfðu misst foreldra sína í átökunum. Aðrir þorpsbúar hafa farið að fordæmi Bab Al-Ginan og veitt munaðarlausum börnum og fólki á flótta húsaskjól og aðstoð.

UN Women trúir að með því að styðja við réttindi og atvinnuþátttöku kvenna, er stutt við samfelög þeirra. Saga Bab Al-Ginan er lifandi sönnun þess.

Þú getur hjálpað með því að gerast Ljósberi og styrkja starf UN Women á Íslandi með mánaðarlegum framlögum.

Related Posts
Landamæri Úkraínu og Moldóvu