
Fjöldi fólks hefur leitað skjóls í Moldóvu. Móttökubúðum hefur verið komið upp við landamæri Úkraínu og Moldóvu.
Úkraínskar konur á flótta búa við stóraukna hættu á kynbundnu ofbeldi nú er stríð geisar í landinu. UN Women hefur ítrekað bent á að þegar átök brjóstast út, margfaldast líkurnar á að konur, stúlkur og ungir drengir séu beitt kynferðislegu ofbeldi.
Við landamæri Úkraínu hafa ítrekað borist fregnir af því að skipulagðir glæpahópar nýti sér neyð kvenna og barna á flótta og að þau verði fórnarlömb mansals. Félagasamtök sem framkvæmdu áhættumat meðal flóttafólks í Póllandi, komust að þeirri niðurstöðu að enn væru miklar brotalamir þegar kæmi að öryggi fólks á flótta. Ástæða þessa er að félagasamtök og opinberar stofnanir hafa orðið að reiða sig á aðstoð sjálfboðaliða til að anna þeim gríðarlega fjölda fólks sem leitað hefur yfir landamærin til Póllands. Sjálfboðaliða skorti oft reynslu, þekkingu og þjálfun í móttöku flóttafólks.
Lengi verið vandamál

Konur og börn eru 90% þeirra er hafa flúið átökin í Úkraínu.
Hvar sem stríðsátök brjótast út verður stór hópur fólks fyrir sálrænum áföllum og ýmist tekur þátt í eða verður fyrir ofbeldisfullum atburðum. Aukið aðgengi að vopnum, eyðilegging innviða, rof á daglegu lífi og skortur á stuðningi verður til þess að ýta undir áframhaldandi ofbeldi, m.a. heimilisofbeldi og kynbundið ofbeldi, að átökum loknum.
Kynbundið ofbeldi og áreitni hefur lengi verið vandamál í Úkraínu, en 75% úkraínskra kvenna hafa orðið fyrir kynbundu ofbeldi eftir 15 ára aldur. Þriðjungur þeirra hafði orðið fyrir kynferðisofbeldi.
Samkvæmt Utanríkisráðuneyti Úkraínu hafa upplýsingar borist þeim varðandi aukna tíðni kynferðisofbeldis tengt stríðsátökum (e. conflict related sexual violence eða CRSV) en að erfitt hafi reynst að skrásetja slík mál þar sem þolendur treysta sér ekki til að tilkynna brotin.
Samhliða auknum kynferðisbrotum, verður erfiðara fyrir þolendur að verða sér úti um aðstoð á stríðstímum. Um 81% þolenda leita sér ekki faglegrar aðstoðar í kjölfar brots né treysta sér til að tilkynna brotið til yfirvalda. Á átakatímum eykst jafnframt tíðni ofbeldisglæpa gegn börnum og því gífurlega mikilvægt að reyna að tryggja að sérhæfð þjónusta og aðstoð sé til staðar fyrir brotaþola þrátt fyrir átök.
Jaðarsettir hópar í hættu
Barnahjónabönd eru fátíð í Úkraínu, ef frá eru talin samfélög Rómafólks. Úkraínsk yfirvöld hafa leitt þann skaðlega sið hjá sér á þeim forsendum að þau vilji ekki sýna af sér forræðishyggju þegar kemur að menningu Rómafólks. Ungar stúlkur af Róma uppruna búa við margþætta mismunun vegna uppruna, kyns, menntunarleysis og fátæktar sem gerir þeim erfitt um vik með að sækja sér aðstoðar vegna heimilisofbeldis eða þvingaðra barnahjónabanda.
Vegna fordóma og jaðarsetningar, hefur Rómafólk jafnframt átt erfitt með að flýja átökin í Úkraínu því fæst eru þau með skilríki eða vegabréf.
Hinsegin fólk býr við aukna ógn og ofsóknir á átakatímum vegna kynhneigðar og kynvitundar. Fordómar, ofbeldi og nauðganir í því skyni að leiðrétta kynhneigð fólks (e. corrective rape) margfaldast í stríðsátökum. Það er því mikilvægt að gæta ekki aðeins að öryggi kvenna og barna, heldur einnig hinsegin fólks og tryggja þeim aðgengi að viðeigandi aðstoð. Þá þarf að hafa margþætta mismunun sérstaklega í huga í þessum efnum.
Komast ekki heim
Aðrir hópar sem hafa átt í örðugleikum með að komast yfir landamæri Úkraínu í öruggt skjól, eru transfólk sem er með skilríki sem sýnir ekki eiginlegt kyn þeirra, heimilislaust fólk og fólk frá ríkjum utan Evrópu. Alþjóðlegir nemendur sem stunda nám í Úkraínu og verkamenn, m.a. frá ríkjum á borð við Indland og Kína, hafa átt í erfiðleikum með að yfirgefa landið í kjölfar átakana. Félagasamtök í Úkraínu hafa kallað eftir því að ríki með landamæri við Úkraínu taki við flóttafólki af öllum þjóðernum og aðstoði fólk við að komast til sinna heima.
UN Women er á staðnum, bæði í Úkraínu og í ríkjum sem hafa landamæri að Úkraínu, og veitir neyðaraðstoð, ráðgjöf og þjálfun svo hægt sé að mæta þörfum allra, óháð kyni, uppruna og stöðu.
Þú getur lagt okkur lið með því að senda sms-ið KONUR í númerið 1900 (1900 krónur fara af reikningi til neyðaraðstoðar í Úkraínu).

