fbpx

Rúanda á heimsmetið í þátttöku kvenna á þingi

Heim / Fréttir / Rúanda á heimsmetið í þátttöku kvenna á þingi

Konur eru 67,5% þingmanna í Rúanda. Hvergi í heiminum skipa konur jafn mörg þingsæti og í Rúanda.

Rúanda setti nýtt heimsmet í þátttöku kvenna á þingi er nýtt landsþing tók til starfa í september í fyrra. Konur skipa nú 54 þingsæti af 80 og eru þar með 67,5% þingmanna en áður höfðu þær verið  64% þingmanna. Til samanburðar hafa íslenskar þingkonur mest verið 44,4% þingmanna og var það árið 2015.

Árið 2003 samþykkti rúanska þingið lög er tryggja jafnari þátttöku kvenna í þingstörfum, m.a. með kynjakvótum. Sama ár fjölgaði þingkonum töluvert og urðu þær um helmingur þingmanna. Rúanskar stjórnmálakonur segjast þó enn upplifa það að efast sé um hæfni þeirra og getu til þingstarfa.

Á mánudag kynnti Martin Chungong, framkvæmdastjóri Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU), niðurstöður rannsóknar á kynferðisofbeldi og áreitni innan þjóðþinga Evrópu á morgunverðarfundi á Grand Hótel á vegum íslensku stjórnmálaflokkanna. Fundurinn bar yfirskriftina #METOO og stjórnmálin.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að 85% þingkvenna í 45 löndum Evrópu hafa verið beittar kynferðislegu ofbeldi, áreitni og kynjamisrétti í vinnunni. En 47% kvennanna sögðu að þær hefðu fengið morðhótanir, verið hótað að þeim yrði nauðgað eða beittar líkamlegu ofbeldi. Þá kom í ljóst að þingkonur undir 40 ára aldri eru líklegri til að verða fyrir kynferðislegri áreitni og að kvenkyns starfsmenn þinga verða frekar fyrir kynferðislegu ofbeldi en þingkonur. Skýrslan er sú fyrsta í röð svæðisbundinna rannsókna sem Alþjóðaþingmannasambandið stendur fyrir um kynbundið ofbeldi og áreiti gagnvart konum í þjóðþingum heims.

Chungong sagði í tölu sinni á fundinum að ofbeldi og áreitni fæli konur frá þingstörfum. „Þegar þingkonur verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, áreitni og kynjamisrétti í vinnunni geta þær ekki látið til sín taka að fullnustu. Málfrelsi þeirra er skert og þær upplifa sig óöruggar láta því síður að sér kveða. Þetta hefur bein áhrif á störf þinganna og bein áhrif á lýðræðið því lönd með veik þing standa síður vörð um lýðræði.“

Þegar konur eru virkir þátttakendur í stjórnmálum eru teknar ákvarðanir sem hagnast bæði konum og karlmönnum. Valdeflandi leiðtogaþjálfun við þátttöku kvenna í stjórnmálum og í atvinnulífi eru lykilatriði við að lagfæra þennan halla. UN Women styður konur til forystu og áhrifa um allan heim meðal annars með því að þrýsta á stjórnvöld að fá lögum breytt konum í hag til að tryggja konum greiðan aðgang að kjörklefum sem og þingsætum. UN Women veitir einnig konum valdeflandi frumkvöðla- og leiðtogaþjálfun víða um heim, þar á meðal í Rúanda.

Related Posts