Örugg borg: Breytum borgum saman

Heim / Kjarnaframlög / Örugg borg: Breytum borgum saman

shared-image 1200x628Þrír af hverjum fjórum karlmönnum í Nýju Delí trúa því að konur eigi skilið að vera áreittar séu þær einar á ferð eftir myrkur.

Ofbeldi gegn konum, stúlkum og börnum í almenningsrýmum er hnattrænt vandamál. Meira að segja í öruggustu borgum heims eins og Reykjavík verða konur fyrir ofbeldi af ýmsu tagi. Í öðrum borgum er slíkt ofbeldi daglegt brauð sem hamlar konum að lifa eðlilegu lífi eins og að ferðast til og frá vinnu, ganga í skóla eða eiga sér félagslíf. Aldur, samfélagsstaða og klæðaburður hefur engin áhrif á hvort konur eða stúlkur verði fyrir kynferðisofbeldi eða áreitni á opnum svæðum.

Öruggar borgir (e. Safe Cities Global Initiative) er alþjóðlegt verkefni UN Women. Borgaryfirvöld 18 landa hafa heitið því að gera borgina sína öruggari fyrir alla og Reykjavík hefur nú bæst í hópinn og mun vinna að bættu öryggi kvenna og barna. Markmið Öruggra borga er að skapa konum, unglingum og börnum öruggt líf í borgum án ótta við ofbeldi og er það unnið í samstarfi við borgaryfirvöld og frjáls félagasamtök á hverjum stað. Leitast er eftir að auka öryggi, koma í veg fyrir og/eða draga úr ofbeldi, virkja og efla kvennasamtök og talsmenn barna og móta þannig öruggt og traust umhverfi fyrir alla.
Af hverju vinnur UN Women að því að gera borgir öruggari?
•    99,3 prósent kvenna og stúlkna á þéttbýlissvæðum í Egyptalandi hafa upplifað kynferðislega áreitni og um helmingur þeirra verður fyrir áreitni daglega.
•    95 prósent kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær ekki öruggar á götum úti. 73 prósent þessara kvenna upplifa ekki einu sinni öryggi í sínu nánasta umhverfi.
•   Þrír af hverjum fjórum karlmönnum í sömu rannsókn telja að konur eigi sjálfar sök á ofbeldinu þar sem þær bjóði upp á það með tilteknum klæðnaði.

Dæmi um verkefni UN Women í Nýju Delí, Port Moresby, Kaíró og Rio de Janeiro

Konur og börn í fátækustu löndum heims þurfa á þínum stuðningi að halda. Gakktu til liðs við UN Women strax í dag og hafðu raunveruleg áhrif.

Vilt þú taka þátt í að skapa konum og börnum um heim allan öruggara líf án ótta við ofbeldi? Sem mánaðarlegur styrktaraðili UN Women á Íslandi leggur þú þitt af mörkum í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Vertu með!  Það tekur aðeins mínútu að skrá sig.

Related Posts