fbpx

Ný stjórn ungmennráðs UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Ný stjórn ungmennráðs UN Women á Íslandi

 

F.v. Hulda Sif Högnadóttir, Líney Helgadóttir, Gerður Ævarsdóttir, Fönn Hallsdóttir, Védís Drótt Cortez, Sólrún Ásta Reynisdóttir og Erna Benediktsdóttir.

Aðalfundur ungmennráðs UN Women á Íslandi fór fram á dögunum. Ný sjö kvenna stjórn var kosin en þess ber að geta að eingöngu konur buðu sig fram. Farið yfir liðið starfsár, aktívistahópurinn Antírasistar héldu erindi ásamt aktívistahópnum Öfgar fimmtudaginn 9. September í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Ný stjórn ungmennráðsins samanstendur af eftirfarandi: Erna Benediktsdóttir, Fönn Hallsdóttir, Gerður Ævarsdóttir, Hulda Sif Högnadóttir, Líney Helgadóttir, Sólrún Ásta Reynisdóttir og Védís Drótt Cortez.

Hlutverk ungmennaráðs er að fræða og efla ungmenni um málefni kvenna og jafnréttis á í fátækari löndum og á átakasvæðum. Það gera meðlimir ráðsins fyrst og fremst með fræðslu og kynningum í grunn- og framhaldsskólum. Gengið er út frá þeirri stefnu að ungur fræði ungan. En einnig stendur ráðið fyrir vitundarvakningar- og fjáröflunarviðburðum.

Síðastliðið starfsár ungmennaráðsins var með óvenjulegu sniði vegna samkomutakmarkana vegna heimsfaraldursins. Stjórn ráðsins aðlagaði sig fljótt og bauð upp á skólakynningar í gegnum Zoom og Teams. Heildarfjöldi fjarkynninga var 24 og efldi þetta nýja fyrirkomulag fræðslu á landsbyggðinni. Ný fræðslunefnd eingöngu skipuð strákum, var sett á fót. Markmiðið með því var að jafna kynjahlutföll í skólakynningum. Samfélagsmiðlar ungmennaráðsins blómstruðu í höndum stjórnarinnar með ýmsum liðum, líkt og „Femínistar tala“, þar sem fjölbreyttur hópur femínista tók yfir Instagram ungmennráðsins og fjallaði um fjölbreyttar leiðir í femínisma. Á meðal femínista voru Sóley Tómasdóttir, Vilhelm Neto, Ingileif Friðriksdóttir og Sema Erla.

Við þökkum fráfarandi stjórn fyrir vel unnin störf og  óskum nýrri stjórn góðs gengis og hlökkum til samstarfsins.

Fyrirspurnir um skólakynningar berast til youth@unwomen.is

Related Posts
Haítí, jarðskjálfti, 2021, UN WomenSima Sami Bahous, UN Women