fbpx

Sima Bahous skipuð framkvæmdastýra UN Women

Heim / Fréttir / Sima Bahous skipuð framkvæmdastýra UN Women
Sima Sami Bahous, UN Women

UN Photo/Evan Schneider

Sima Sami Bahous  hefur verið skipuð ný framkvæmdastýra UN Women. Sima tekur við af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem lét af störfum í ágúst. António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti skipanina í gær, mánudag.

Sima, sem er jórdönsk, hefur áratuga langa reynslu af stjórnunarstörfum bæði innan grasrótarinnar og á alþjóðavettvangi. Hún var áður fastafulltrúi Jórdaníu hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og starfaði á svæðisskrifstofu Þróunaráætlunar Sþ í Arabaríkjunum  á árunum 2012-2016.

Þá hefur Sima gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum innan jórdanska stjórnarráðsins og verið útnefnd sérlegur ráðgjafi Jórdaníukonungs. Hún er með doktorsgráðu í samskiptum og þróunarfræðum, MA próf í bókmenntum og BA gráðu í enskum bókmenntum.

Sima tekur við stöðu framkvæmdastýru UN Women af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem hafði gegnt stöðunni frá árinu 2013.

Phumzile er kennari að mennt og er með doktorsgráðu í kennslufræðum. Hún hefur lengi verið virk í kvenréttindabaráttunni, bæði í heimalandi sínu Suður Afríku og á alþjóðvettvangi. Phumzile gegndi embætti varaforseta Suður Afríku á árunum 2005 til 2008 og var virk í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnu suður afrískra stjórnvalda á sínum yngri árum.

Á sama tíma og UN Women á Íslandi býður Sima Bahous velkomna til starfa, kveðja samtökin Phumzile og þakka henni fyrir einstakt starf í þágu kvenna og stúlkna um allan heim.

 

Related Posts
Þórður Kristinsson, kynjafræðikennari