fbpx

Aðalfundur landsnefndar UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Aðalfundur landsnefndar UN Women á Íslandi

FACEBOOK VEGGMYNDIR3Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 30. apríl klukkan 20.00 í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 176, fimmtu hæð.
Allir eru velkomnir á fundinn en félagar UN Women sem hafa greitt félagsgjöld sl. ár eða eru í Systralagi UN Women á Íslandi hafa rétt á að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt. Minnum á að framboð til stjórnar þarf að berast þremur dögum fyrir aðalfund á unwomen@unwomen.is Hvetjum alla áhugasama til þess að mæta! Dagskrá fundar er eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Formaður UN Women á Íslandi skýrir frá viðfangsefnum félagins og rekstri þess á liðnu starfsári.
3. Rekstrar- og efnahagsreikningar landsnefndar fyrir liðið starfsár eru kynntir og lagðir fram til samþykktar.
4. Ákvörðun um félagsgjöld fyrir starfsárið.
5. Kjör stjórnar og formanns.
6. Kjör endurskoðanda.
7. Umræður um önnur mál.

Related Posts