Viltu breyta heiminum í sumar?
Við hjá UN Women á Íslandi viljum bæta við okkur hörkuduglegu og skemmtilegu fólki í fjáröflunarteymið á líflega vinnustaðnum okkar í sumar. Starfið felur í sér að kynna starfsemi UN Women og bjóða fólki að gerast styrktaraðilar með götukynningum og með því að ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða hálft starf og er vinnutími síðdegis alla virka daga.
Hæfniskröfur:
- Mjög góð samskiptahæfni og hrífandi framkoma
- Samviskusemi og áreiðanleiki
- Reynsla af sölumennsku er kostur
- Áhugi á starfsemi UN Women er kostur
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til 17. maí og við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Snædís Baldursdóttir, fjáröflunarstýra UN Women á Íslandi, í síma 552-6200.
Umsókn ásamt ferilskrá berist á unwomen@unwomen.is.
Related Posts