fbpx

Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women, heiðursgestur viðburðar í HÍ

Heim / Fréttir / Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women, heiðursgestur viðburðar í HÍ
Sima Sami Bahous, UN Women

Sima Sami Bahous, framkvæmdastýra UN Women er heiðursgestur viðburðarins.

UN Women á Íslandi stendur fyrir viðburðinum „Moving Forward: Partnership for an Equal World“, sem fram fer í Hátíðarsal Háskóla Íslands fimmtudaginn 10. nóvember. Viðburðurinn hefst klukkan 10:00 til 11:00.

Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women, verður heiðursgestur viðburðarins. Bahous mun halda erindi þar sem hún ræðir meðal annars mikilvægt samstarf UN Women við Ísland, en stofnunin á í nánu samstarfi við íslensk stjórnvöld og ríkislögreglu er kemur að jafnréttismálum. Þá er stuðningur Íslendinga við verkefni stofnunarinnar eftirtektarverður, en vegna hans hefur íslenska landsnefndin sent hæsta framlag allra landsnefnda til verkefna UN Women á heimsvísu sjö ár í röð, óháð höfðatölu. Bahous mun jafnframt fjalla um stöðu jafnréttismála í heiminum í dag og helstu áskoranir sem blasa við UN Women í framtíðinni.

Forsetafrú Íslands, Eliza Reid, mun setja viðburðinn og í kjölfar erindis Bahous fara fram pallborðsumræður þar sem þátttakendur í pallborði ræða stöðu jafnréttis og mikilvægi samvinnu til að sporna gegn því bakslagi sem orðið hefur í jafnréttismálum á síðastliðnum árum.

Þátttakendur í pallborði eru Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi ráðherra, Andrés Ingi Jónsson þingmaður, Tatjana Latinovic, formaður kvenréttindafélags Íslands, Askur Hannesson meðlimur Ungmennaráðs UN Women á Íslandi, og Steinunn Gestsdóttir aðstoðarrektor Háskóla Íslands. Umræðustjóri er Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi ráðherra.

Related Posts
SADA, Gaziantep, Tyrkland